Fasteignaleitin
Skráð 25. nóv. 2026

Miðengi

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
44.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
37.900.000 kr.
Fermetraverð
855.530 kr./m2
Brunabótamat
32.050.000 kr.
Byggt 1965
Pallur
Heitur pottur
Sturtuklefi
Sérinng.
Fasteignanúmer
22078123
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Notalegur sumarbústaður á einstaklega gróinni og fallegri lóð við Miðengi í Grímsnesi.
  • Stór og gróin 3.736 m² eignarlóð
  • Pallur með heitum potti
  • Eftirsótt staðsetning
  • Hitaveita
Birt stærð eignar er 44,3 m² samkv. HMS.

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

Eignin skiptist í eldhús, stofu / borðkrók, tvö svefnherbergi, baðherbergi og svefnloft. Auk þess er geymsluskúr við húsið sem gengið er í utan frá.
Nánari lýsing eignar
Eldhús: Komið er inn í opið og bjart eldhús með góðu skápaplássi. Eldhúsið tengist stofu og borðkrók og nýtist rýmið því vel.
Stofa: Björt og notaleg stofa með borðkrók og parketi á gólfi. Stofa og eldhús mynda saman opið og notalegt alrými.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi eru í húsinu.
Svefnloft: Rúmgott svefnloft með glugga sem býður upp á gott viðbótarsvefnpláss og nýtist vel þegar fjölskylda eða gestir dvelja í húsinu.
Baðherbergi: Notalegt baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug.
Geymsluskúr: Geymsluskúr er staðsettur fyrir aftan húsið og gengið er í hann utan frá. Skúrinn er ekki fullkláraður.
Lóð: Eignin stendur á 3.736 m² eignarlóð sem er einstaklega gróin og skjólgóð, með miklum gróðri og háum trjám sem skapa fallega umgjörð um bústaðinn. Við húsið er pallur með heitum potti.

Viðhald og framkvæmdir
Þak: Samkvæmt upplýsingum seljanda var þakið ryðvarið með oxýðmenju og málað sumarið 2026.
Rotþró: Rotþró var síðast hreinsuð 19. september 2022. Seyrulosun er á vegum sveitarfélagsins.
Vatnsveita: Kalt vatn kemur frá Vatnsveitu Grímsnes- og Grafningshrepps og heitt vatn er frá hitaveitu.

Rekstrarkostnaður og sumarhúsafélag
Fasteignagjöld: Fasteignagjöld ársins 2026 eru 155.503 kr. Innifalið er meðal annars seyrulosun og rekstur gámasvæðis og grenndarstöðva.
Rafmagn og hitaveita: Samkvæmt upplýsingum seljanda er meðalhitakostnaður um 17.000 kr. á mánuði og rafmagnskostnaður um 5.600 kr. á mánuði. Kostnaður getur verið breytilegur eftir notkun.
Sumarhúsafélag: Starfandi sumarhúsafélag er á svæðinu og eru félagsgjöld 25.000 kr. á ári. Félagið sér um viðhald Vaðlækjarvegar og unnið er að sjóðssöfnun vegna framtíðarviðhalds vegarins, snjómoksturs og mögulegrar uppsetningar rafmagnshliðs.

Staðsetning
Miðengi er í Grímsnesi. Samkvæmt upplýsingum seljanda er eignin í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík, 10–15 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi og 5–10 mínútna akstursfjarlægð frá 9 holu golfvelli. Ekið er inn Vaðlækjarveg þar sem skilti merkt „Vaðlækjarvegur“ er við afleggjarann.


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.


Ath. Sumar myndir hafa verið unnar með aðstoð gervigreindar þar sem húsgögnum og lausamunum hefur verið bætt inn til að gefa hugmynd um mögulega nýtingu og ásýnd rýma. Myndirnar eru eingöngu til viðmiðunar og geta einstök atriði vikið frá raunverulegu útliti eignarinnar. Fastar innréttingar og aðrir meginþættir eignarinnar hafa ekki verið breyttir.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Pálsson fasteignasala
https://www.palssonfasteignasala.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grenilundur 14
1.jpg
Skoða eignina Grenilundur 14
Grenilundur 14
806 Selfoss
50,9 m2
Sumarhús
11
705 þ.kr./m2
35.900.000 kr.
Skoða eignina Valhnjúkasund 12
Á einni hæð
Valhnjúkasund 12
805 Selfoss
45,4 m2
Sumarhús
12
628 þ.kr./m2
28.500.000 kr.
Skoða eignina Miðengi
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Miðengi
Miðengi
805 Selfoss
44,3 m2
Sumarhús
413
856 þ.kr./m2
37.900.000 kr.
Skoða eignina Vatnsendahlíð 98
Á einni hæð
Vatnsendahlíð 98
311 Borgarnes
61,1 m2
Sumarhús
412
571 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin