Fasteignaleitin
Skráð 9. sept. 2026

SPÁNAREIGNIR - Mar de Cristal

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
109 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
40.600.000 kr.
Fermetraverð
372.477 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
110010926
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
5
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR LÚXUSBÚÐIR VIÐ MAR MENOR* *STÓR SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR OG LÍKAMSRÆKTARAÐSTAÐA* 


Fallegar 3ja og 4ja herbergja íbúðir í nýju fjölbýli í Mar de Cristal, litlum strandbæ við sunnanvert Mar Menor innhafið. Um er að ræða fjölbýli á 5 hæðum og íbúðum á jarðhæð fylgir sér verönd/garður með útgengi beint út í sundlaugargarð og penthouse íbúðum fylgja stórar svalir og þaksvalir. Stæði í bílakjallara og sér geymsla fylgir öllum íbúðum. Aðeins um 1 klst. og 15 mín akstur frá Alicante flugvellinum og um 25 mín. akstur til Cartagena, skemmtilegrar spænskrar borgar með glæsta sögu og menningu. Aðeins um 15 mín akstur til Cabo de Palos, sem er sjarmerandi spænskur strandbær með frábærri aðstöðu til vatnasports og sem scuba kafarar elska.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869. 

Nánari lýsing:

Hægt er að velja um íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Íbúðirnar eru sérlega rúmgóðar og fallega innréttaðar. Eldhús, stofa og borðstofa sameinast í björtu og fallegu opnu rými með góðri tengingu við stórar svalir/verönd með frábærri aðstöðu til að njóta sólar og samveru með fjölskyldu og vinum. Íbúðum á jarðhæð fylgir sér verönd/garður og íbúðum á efstu hæð fylgja góðar svalir og sér þakverönd. Sameign er sérstaklega stór og glæsileg, stórar sundlaugar og græn svæði auk líkamsræktaraðstöðu. Glæsilegt útsýni yfir Mar Menor innhafið.

Verð miðað við gengi 1Evra = 145ISK
íbúð með 2 svefnherb. + 2 baðherb. frá 280.000 Evrum (40.600.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. vegna kaupanna.


Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, verönd, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, golf, strönd, líkamsrækt,
Svæði: Costa Calida, Mar Menor,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
110010926
Fasteignanúmer
110010926

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Efstihjalli 7
Efsta hæð
Skoða eignina Efstihjalli 7
Efstihjalli 7
200 Kópavogur
94 m2
Fjölbýlishús
413
722 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 8
Skoða eignina Silfursmári 8
Silfursmári 8
201 Kópavogur
121.9 m2
Fjölbýlishús
423
894 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Hafnarbraut 10a
200 Kópavogur
117.5 m2
Fjölbýlishús
413
919 þ.kr./m2
107.990.000 kr.
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Diddi_vefur (39).jpg
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Mjóahlíð 10
105 Reykjavík
103 m2
Fjölbýlishús
413
873 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin