Keilusíða 12 íbúð 103 - Vel staðsett 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi í Síðuhverfi - Stærð 50,0 m². Upplýsingar veitir Fasteignasalan Hvammur 466-1600.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Forstofa, eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi og geymsla í sameign.
Forstofa er með opnu fatahengi og parketi á gólfi Eldhús er með ljósri upprunalegri innréttingu með eldavél og stæði fyrir ísskáp. Parket er á gólfi. Stofa er í opnu rými með eldhúsi, þar er gengið út á steyptar svalir er snúa til vesturs. Parket er á gólfi. Svefnherbergið er með fataskáp og parketi á gólfi. Baðherbergi er með ljósri innréttingu undir vask, wc og baðkar með sturtutækjum. Tengi er fyrir þvottavél og góður möguleiki á að hafa þurrkara einnig inná baðherbergi. Dúkur á gólfi. Geymsla er í sameign.
Annað: - Eignin er öll í upprunalegu ástandi og þarfnast endurbóta. - Eignin er í útleigu og er til afhendingar í lok febrúar 2025 eða gegn yfirtöku á leigusamning. - Eigandi hefur aldrei búið í eigninni. - Væntanlegur kaupandi er hvattur til að skoða eignina vel.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sjá yfirlýsingu húsfélags og skýrslu. Sjá þó samskipti hér að neðan Spurning: Ég er með spurningu út í þessa skýrslu, nu var hún gerð árið 2020 og þar kemur fram að margt þurfi að laga og mála svo yfir. Nú var húsið málað 2022 að utan, var þá farið í það að laga þessa hluti áður en málað var? Svar: Það var lagað áður en málað var. Það er samt þessi sprunga sem á er á útvegg sem ekki tókst að laga í þeim framkvæmdum. Svo þarf að þétta þakið yfir inngangi, það er leki þar. Ekkert hefur verið unnið í þakinu sjálfu á húsinu.
Gallar
Eignin er öll í upprunalegu ástandi. Eldhúsinnrétting er svo til ónýt. Baðherbergi þarfnast algerrar endurnýjunar. Skápar í svefnherbergi eru gamlir, en þó nýtanlegir Parket íbúðar er slitið og lélegt.
Keilusíða 12 íbúð 103 - Vel staðsett 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi í Síðuhverfi - Stærð 50,0 m². Upplýsingar veitir Fasteignasalan Hvammur 466-1600.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Forstofa, eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi og geymsla í sameign.
Forstofa er með opnu fatahengi og parketi á gólfi Eldhús er með ljósri upprunalegri innréttingu með eldavél og stæði fyrir ísskáp. Parket er á gólfi. Stofa er í opnu rými með eldhúsi, þar er gengið út á steyptar svalir er snúa til vesturs. Parket er á gólfi. Svefnherbergið er með fataskáp og parketi á gólfi. Baðherbergi er með ljósri innréttingu undir vask, wc og baðkar með sturtutækjum. Tengi er fyrir þvottavél og góður möguleiki á að hafa þurrkara einnig inná baðherbergi. Dúkur á gólfi. Geymsla er í sameign.
Annað: - Eignin er öll í upprunalegu ástandi og þarfnast endurbóta. - Eignin er í útleigu og er til afhendingar í lok febrúar 2025 eða gegn yfirtöku á leigusamning. - Eigandi hefur aldrei búið í eigninni. - Væntanlegur kaupandi er hvattur til að skoða eignina vel.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
24/07/2023
24.000.000 kr.
21.100.000 kr.
50 m2
422.000 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.