** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt 158,5 m2 parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, í byggingu við Háamel 11 Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Húsið afhendist fullbúið á byggingarstigi B4 (nýi staðallinn) með grófjafnaðri lóð í janúar 2025.
Birt stærð eignarinnar er 158,5 m2, þar af parhús 125,8 m2 og bílskúr 32,7 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og bílskúr. Fallegar innréttingar og gólfefni. Innbyggð lýsing. Gólfhitakerfi og gólfsíðir gluggar.
Húsið er mjög vel staðsett í þessu vinsæla hverfi og í göngufæri við leikskóla. Skólaakstur er í grunnskóla. Háimelur er í Melahverfi, ört vaxandi byggðarkjarna í Hvalfjarðarsveit. Melahverfi er staðsett í ca. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Akranesi og ca. 30 mín. akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er gengið inn í
bílskúr. Innangengt er úr forstofu inn í
bílskúr sem er með flísum á gólfi. Úr bílskúr er aðgengi upp á loft sem er yfir húsinu.
Svefnherbergin eru 3 öll með harðparketi á gólfi og fataskápum. Úr hjónaherbergi er útgengi út í garð.
Baðherbergi er með innréttingu, handklæðaofni, vegghengdu salerni og sturtu.Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi og veggjum. Gluggi er á baðherbergi.
Sjónvarpshol og gangur eru með harðparketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa er í opnu rými með gólfsíðum gluggum og rennihurð út í garð. Harðparket á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting og eyja. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, spanhelluborð, háfur og veggofn. Gólfhitakerfi er í öllum gólfum, lagt í hvert rými fyrir sig með stýringu fyrir hvert rými.
Eldhúsinnrétting, baðinnréttingar og fataskápar eru frá HTH. Eldhústæki frá AEG, þ.e. ofn, helluborð (span), innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Háfur er af gerðinni Airforce. Á gólfi í baðherbergi, forstofu og bílskúr eru 600X600 flísar frá Álfaborg, en í örðum rýmum 10 mm harðparket frá Birgisson. Innihurðir eru hvítlakkaðar Ringo hurðir frá Birgisson. Bílskúrshurð, allir gluggar, útihurðir og rennihurð eru frá Gluggatækni.
Húsið er timburhús klætt að utan með bárujárnsklæðningu frá Áltak, á steyptum sökkli og steyptri gólfplötu. Gluggar og útihurðir eru ál-tré.
Lóð er grófjöfnuð og skilast í því ástandi sem hún er.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati).
Verð kr. 89.900.000,-