Fasteignaleitin
Skráð 1. okt. 2026

Víkurmói 2

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
98.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
656.218 kr./m2
Fasteignamat
62.850.000 kr.
Brunabótamat
57.100.000 kr.
Byggt 2022
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2512980
Landnúmer
206612
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: 4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð með fallegu útsýni í nýlegri blokk á Selfossi
Íbúðin sem er 98,8 fm að stærð með geymslu innan íbúðar.
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, eldhús/stofu í alrými, þvottahús/geymslu.
Sérsmíðaðar innréttingum frá HTH, harðpaket á gólfum en flísar á baðherbergi. Guggar og svalahurðir eru ál/tré. Eldhúsinnrétting er tvítóna, með ljósri viðaráferð á neðri skápum og hvítum neðri skápum. Heimilistæki frá Ormsson, helluborð, ofn, háfur og innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti og Led lýsing undir efri skápum. Innihurðir eru með mattri hvítri áferð og eru yfirfelldar.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum með staðsteyptum milliplötum. 
Bílaplan malbikað með hleðslustaurum.


Nánari lýsing:
Forstofa:
Gengið er af svalagangi inn í rúmgóða forstofu með glugga.
Gangur: úr anddyri er komið inn á gang.
Eldhús/stofa: Eldhúsinnréttingin eru tvítóna, með ljósri viðaráferð á neðri skápum og hvítum efri skápum. Heimilistækin frá Ormsson, helluborð, bakaraofn, háfur, ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél Úr alrými er útgengi á skjólgóðar suður svalir. 
Hjónaherbergi: með þreföldum fataskápum og gluggum á tvo vegu.
Baðherbergi: flísalagt gólf og að hluta til á veggjum, walk in sturta með glerskilrúmi. Góð baðinnrétting með vaski og speglaskáp fyrir ofan, handklæðaofni og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi#2: með fataskáp og góðum glugga.
Svefnherbergi#3: með fataskáp og góðum glugga.  
Geymsla: innan íbúðar er 4,6 fm geymsla. 
Sameign: hjóla- og vagnageymsla í sameign. 
Lóð: með malbikuðu bílastæði með bílahleðslustöðum.

Eignin Víkurmói 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-2980, birt stærð 98.9 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.is

Niðurlag:
Vel skipulögð eign á 2 hæð í nýlegu fjölbýlishúsi á Selfossi, stutt í alla helstu þjónustu og í Stekkjarskóla. 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/12/202350.200.000 kr.59.300.000 kr.98.9 m2599.595 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala
http://www.gimli.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 8
Skoða eignina Hnjúkamói 8
Hnjúkamói 8
815 Þorlákshöfn
81.9 m2
Fjölbýlishús
312
720 þ.kr./m2
59.000.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 31
Á einni hæð
Skoða eignina Núpahraun 31
Núpahraun 31
815 Þorlákshöfn
104.3 m2
Raðhús
413
676 þ.kr./m2
70.500.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 3
Bílastæði
Skoða eignina Kuggavogur 3
Kuggavogur 3
104 Reykjavík
109.2 m2
Fjölbýlishús
32
787 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhamar 2
Efsta hæð
Skoða eignina Nónhamar 2
Nónhamar 2
221 Hafnarfjörður
109.1 m2
Fjölbýlishús
43
769 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin