Eignamiðlun ehf. auglýsir 2ja - 5 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Arkarvog 1, 104 Reykjavík. Um er að ræða 51 íbúð, stærðir frá 62,8 fm - 141,9 fm. Allar íbúðir með bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Bókið skoðun. Afhending íbúða í maí 2025 eða fyrr.Íbúð merkt 201 - Þriggja herbergja 98,2 fm íbúð á annari hæð með tveim svefnherbergjum og rúmgóðum svölum. Gluggar á þrjá vegu í þessari íbúð. Rúmgott svefnherbergi og eitt minna barnaherbergi, baðherbergi, eldhús afgirt að hluta inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara.
Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýtingu á varma. Vönduð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Svalir með rennihurð.Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isSmellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsinguNánari lýsing:Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi með skápum.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið að hluta inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð og fallegt útsýni.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 10 fm geymslu.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.