Miklaborg kynnir: Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á rólegum stað við Kleppsveg. Þvottahús innan íbúðar og gluggar á þrjá vegu. Stutt í þjónustu og skóla. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir: Kristínn Pétursdóttir, lögg. fasteignasali, gsm.8241965 eða kristin@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING:
Komið er inn í anddyri/hol með fatahengi. Þaðan er gengið í hjónaherbergi með skápum og frönskum svölum sem vísa út í stóran bakgarð. Á móta hjónaherbergi er annað minna svefnherbergi. Stofan er björt og rúmgóð. Á móti stofu er eldhús með hvítri innréttingu, efri skápar voru nýlega endurnýjaðir, tengt fyrir uppþvottavél. Inn af eldhúsi er gott þvottahús með glugga og hillum, pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergið er með glugga og baðkari með sturtuaðstöðu.
Á svefnherbergjum og í stofu er parket á gólfum og flísar a eldhúsi og baðherbergi.
5,3 fm. sérgeymsla í kjallara fylgir eigninni og í sameign fylgir hlutdeild í sameiginlegu þvotta- og þurrkherbergi sem og hjóla- og vagnageymslu.
Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur verið gerðar á húsinu að utan: Húsið hefur verið endursteinað og skipt um glugga, gler og þak. Skólplagnir endurnýjaðar að hluta. Fyrir ári síðan voru byggð ný sorptunnuskýli, skipt um hellulögn fyrir framan húsið og lagður hiti í stétt.
Góð 3ja herbergja íbúð miðsvæðis þar sem stutt er í skóla og alla þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristínn Pétursdóttir, lögg. fasteignasali, gsm.8241965 eða kristin@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 20/08/2021 | 30.300.000 kr. | 38.500.000 kr. | 62.8 m2 | 613.057 kr. | Já |
| 17/07/2018 | 25.800.000 kr. | 29.000.000 kr. | 62.8 m2 | 461.783 kr. | Nei |
| 18/10/2013 | 14.850.000 kr. | 18.200.000 kr. | 62.8 m2 | 289.808 kr. | Já |
| 13/08/2012 | 13.250.000 kr. | 17.200.000 kr. | 62.8 m2 | 273.885 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
104 | 48.1 | 54,9 | ||
104 | 65.1 | 57,9 | ||
104 | 62.3 | 56,9 | ||
104 | 59.5 | 56,9 | ||
102 | 55.9 | 55,7 |