Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2026

Hraunbær 130

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
91.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
699.890 kr./m2
Fasteignamat
63.400.000 kr.
Brunabótamat
50.300.000 kr.
Mynd af Helga Pálsdóttir
Helga Pálsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
2. hæð
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2045100
Landnúmer
111084
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
upprunaleg í íbúð, endurnýjuð í sameign
Frárennslislagnir
endurnýjaðar 2026
Gluggar / Gler
endurnýjaðir á suðurhlið , eldri á norðurhlið
Þak
endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega, bjarta og vel staðsetta 3.herbergja 91,3 m2 íbúð á 2. hæð að Hraunbæ 130 með suður svölum. Samkvæmt fmr er íbúðarhlutinn skráður 86,8 m2 ásamt 4,5 m2 geymslu. Stutt í alla helstu þjónustu skóla, sund, íþróttir, verslun og Elliðaárdalurinn ekki langt undan. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði með hleðslustöð. Eignin er laus við kaupsamning.

Nánari lýsing
Komið er inn í sameiginlegan snyrtilegan stigagang og gengið upp á aðra hæð.

Forstofa er opin og parketlögð. 
Eldhús er á vinstri hönd frá forstofu með góðum borðkrók og snyrtilegri innréttingu efri og neðri skápum og skúffum með nýlegri borðplötu og flísum á milli skápa, háfur ásamt helluborði.Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu,  innbyggður örbylgjuofn og bakarofn í vinnuhæð. Gluggi gefur góða birtu inn í eldhús með útsýni að Esju og nærumhverfi.
Stofan er parketlögð með útgengi út á suðursvalir. 

Svefnherbergisálma með góðu skápaplássi fyrir miðju með nýlegum fataskáp með speglahurðum , tveimur svefnherbergjum og baðherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Baðinnrétting er rúmgóð með skúffum og handlaug ásamt skáp. Spegill með lýsingu fyrir ofan handlaug. Gluggi er á baðherbergi sem gefur góða birtu inn í rýmið. 
Hjónaherbergi er bjart parketlagt mjög rúmgott með nýlegum fataskáp með rennihurðum.
Barnaherbergi parketlagt.
Geymsla með hillum er í kjallara hússins ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.
Útgangur er frá kjallara út að sameiginlegum garði húsa. Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína þvottavél.

Helstu framkvæmdir á sameign
* Gluggar endurnýjaðir á suðurhlið hússins 2019 ásamt svalahurð.
* Skift var um járn og dúk á þaki, einnig var skipt út klæðningu og sperrum.
* Þakrennur endurnýjaðar ásamt hluta af niðurföllum
* 2021 Múrviðgerðir og málun á suður og norðurhlið
* 2021 Gluggar málaðir á norðurhlið.
* 2021 Hús málað að utan
* 2023 nýtt dyrasímakerfi
* 2024 Rafmagn lagt í bílaplan, í hvert stæði.
* 2026 Skolplögn endurnýjuð í stigaganginum
* 2026 Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð 
* 2026 Rafmagn endurnýjað í þvottahúsi svo hver íbúi geti haft þvottavél og þurrkara.
* 2026 epoxi sett á þvottahús og hjólageymslu.
* 2026 Inngangur flísalagður 


Góð snyrtileg eign með góðu aðgengi á vinsælum stað í Hraunbænum þaðan sem stutt er í allar áttir og þjónusta og afþreying í göngufæri. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/12/202135.850.000 kr.49.500.000 kr.91.3 m2542.168 kr.Já
01/10/202035.950.000 kr.39.900.000 kr.91.3 m2437.020 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðavík 21
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Breiðavík 21
Breiðavík 21
112 Reykjavík
95,2 m2
Fjölbýlishús
312
734 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Torfufell 48 - Nýuppgerð
Torfufell 48 - Nýuppgerð
111 Reykjavík
96,8 m2
Fjölbýlishús
413
697 þ.kr./m2
67.490.000 kr.
Skoða eignina Torfufell 48
Skoða eignina Torfufell 48
Torfufell 48
111 Reykjavík
96,8 m2
Fjölbýlishús
413
697 þ.kr./m2
67.490.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 1
Bílastæði
Skoða eignina Maríugata 1
Maríugata 1
210 Garðabær
102,5 m2
Fjölbýlishús
43
926 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin