Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallegt og bjart 2ja hæða parhús með bílskúr á rólegum og góðum stað á Hvaleyrarholtinu í Hafnarfirði að Klapparholti 6.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 152,3 fm og þar af er bílskúr skráður 24,4 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með parket á gólfi og góðan yfirhafnaskáp. Gólfhiti í forstofu.
Gestasalerni við forstofu. Flísar á gólfi og gluggi.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi.
Borðstofa við eldhús með flísar á gólfi. Útgengt á góðan
pall og út í garð.
Eldhús sem er í góðu alrými með stofu og borðstofu með fallegri upprunalegri innréttingu, ofn í vinnuhæð og örbylgjuofn þar fyrir ofan, innb. uppþvottavél, eyja með góðum skúffum, helluborði og stein borðplötu.
Steyptu parketlagður
stigi með álhandrið upp á
efri hæð.
Sjónvarpsstofa/hol með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góða "walk-in" sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, glugga og góða innréttingu og skáp. Endurnýjað 2021.
Svefnherbergi eru
3 og öll rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á sitthvorar
svalirnar úr tveim herbergjanna.
Þvottahús er rúmgott með góða fataskápa öðru megin og efri og neðri skápa á móti og skolvask. Flísar á gólfi.
Aukin lofthæð að hluta á efri hæð og
geymsluloft yfir hluta hæðarinnar.
Bílskúr er rúmgóður með bæði heitt og kalt vatn, hitaveitu og rafmagn. Gönguhurð á hlið bílskúrs og ný rafdrifin bílskúrshurð.
Flott fjölskyldueign á frábærum stað á Holtinu í Hafnarfirði. Leik- og grunnskóli í göngufæri sem og Hvaleyrarvöllur. Stutt niðrá höfn og í miðbæ og hjarta Hafnarfjarðar og alla helstu þjónustu. Góðar gönguleiðir í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is