Fasteignaleitin
Skráð 6. júní 2025
Deila eign
Deila

Núpalind 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
100.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
746.760 kr./m2
Fasteignamat
69.850.000 kr.
Brunabótamat
53.550.000 kr.
Mynd af Elín Viðarsdóttir
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1999
Þvottahús
Lyfta
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2234956
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Þak
Þörf á viðhaldi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
3,56
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt yfirlýsingu húsfélagsins er búið að samþykkja að láta setja upp öryggismyndavélar framan á húsið. Þá hefur húsélagið látið vinna skýrslu um ástandið á gluggum hússins og frágang með þeim og verið er að vinna skýrslu um ástandið á þakinu. Þá hefur verið talað um viðgerðir á burðarsúlum. Þegar skýrslurnar liggja báðar fyrir þá verður kallað til húsfundar og farið yfir stöðuna. Sjá nánar yfirlýsingu húsfélagsins dags. 9.6.2025, aðalfundargerð húsfélagsins dags. 30.4.2025, húsfundargerð dags. 15.5.2025 og ástandsskýrslu frá Fasteignaskodun.is dags. 10.6.2025.
Gallar
Það er komið ryð í þakið á sumum stöðum. Það hefur lekið inn um nokkra glugga og hafa viðgerðir þegar farið fram m.a. annars á einum glugga í borðstofunni á þessari íbúð. Talið er að burðarsúlur við salir þarnist viðgerðar t.d. múrunnar. Sjá nánar yfirlýsingu húsfélagsins dags. 9.6.2025, aðalfundargerð húsfélagsins dags. 30.4.2025, húsfundargerð dags. 15.5.2025 og ástandsskýrslu frá Fasteignaskodun.is dags. 10.6.2025.
Valhöll kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3.hæð í Núpalind 8 í Kópavogi. Íbúðin er staðsett í suð-vestur horni hússins og fær því góða birtu inn um alla glugga. Þá er hún með yfirbyggðum svölum. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, sundlaug, skóla, leikskóla og stofnbrautir.

Eignin er skráð 100,3 fm á stærð og skiptist í 95,1 fm íbúð og 5,2 fm geymslu á jarðhæð.

Eignin skiptist forstofu, baðherbergi, hjónaherbergi, barnaherbergi, stofu, eldhús, þvottahús, borðstofu, yfirbyggðar svalir og geymslu á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjólageymslu.

Þetta er falleg eign sem vert er að skoða.

Nánari lýsing:

Forstofa: með fataskáp og flísum á gólfi. Útihurð íbúðarinnar er nýleg hljóðeinangrandi hurð. 
Hjónaherbergi: með fataskápum og parketi á gólfi.
Barnaherbergi: með fataskáp og parketi á gólfi. 
Baðherbergi: með baðkari með sturtu aðstöðu, salerni, ljósri innréttingu með vask og spegli og flísum á gólfi og veggjum.
Eldhús: með góðri innréttingu með bakaraofni, span helluborði og viftu, plássi fyrir uppþvottavél og ísskáp sem fylgja og parketi á gólfi. 
Borðstofa: með björtu gluggum og parketi á gólfi. 
Stofa: með parketi á gólfi og útgengt á yfirbyggðar svalir til suð-vesturs með hitalampa í lofti.
Þvottahús: er innaf eldhúsi.
Geymsla: 5,2 fm sérgeymsla er á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg á jarðhæð.

Nánari upplýsingar veitir:
Elín Alfreðsdóttir fasteignasali í síma 899-3090 eða elina@valholl.is

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/10/201526.350.000 kr.33.000.000 kr.100.3 m2329.012 kr.
15/09/201423.850.000 kr.31.500.000 kr.100.3 m2314.057 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina FORSALIR 1 ÍBÚÐ 401
Bílskúr
Forsalir 1 Íbúð 401
201 Kópavogur
91.6 m2
Fjölbýlishús
312
785 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Lautasmári 3
Skoða eignina Lautasmári 3
Lautasmári 3
201 Kópavogur
96.3 m2
Fjölbýlishús
312
757 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarsmári 18
Skoða eignina Arnarsmári 18
Arnarsmári 18
201 Kópavogur
100.2 m2
Fjölbýlishús
413
757 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Núpalind 4
Skoða eignina Núpalind 4
Núpalind 4
201 Kópavogur
97.6 m2
Fjölbýlishús
312
767 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin