Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Faxabraut 40

RaðhúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
179.9 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
471.929 kr./m2
Brunabótamat
83.200.000 kr.
Byggt 1960
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20875271
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Rúmgott og fjölskylduvænt 6 herbergja endaraðhús á tveimur hæðum með bílskúr þar sem möguleiki er á útleigueiningu á eftirsóttum stað í Holtaskólahverfi í Reykjanesbæ.
**5 svefnherbergi (þar af 1 í bílskúr)  **3 baðherbergi (þar af 1 í bílskúr)  **Endurnýjað eldhús og 2 baðherbergi  **Afgirt verönd með heitum potti og garður í suður  **Suðursvalir út frá hjónaherbergi  **Möguleg útleigueining í bílskúr en búið er að gera herbergi í enda bílskúrs og lítið baðherbergi. 


Eignin er skráð 179,9 fm skv HMS sem skiptist í íbúð 131,5 fm og bílskúr 48,4. Gólfefni eignar eru parket og vandaðar flísar.

Nánari lýsing eignar neðri hæðar:
Forstofa
með fatahengi, flísar á gólfi.
Gestasalerni (endurnýjað 2023) er innaf forstofu með flísum/steini á gólfi og veggjum, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Geymsla er innaf forstofu með hillum, dúkur á gólfi.
Hol fyrir framan forstofu og þaðan er gengið inn í eldhús, stofu og upp stiga á efri hæð, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með útgengt á afgirta timburverönd með heitum potti og þaðan út í garð.
Eldhús var endurnýjað árið 2023 með bakaraofn í vinnuhæð, span helluborð, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók. Fallegar og vandaðar flísar á gólfi.
Þvottahús er innaf eldhúsi, endurnýjað 2023 með góðri innréttingu með vaski, flísar á milli efri og neðri skápa og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Fallegar og vandaðar flísar á gólfi. Útgengt í innkeyrslu.

Nánari lýsing efri hæðar:
Hol með parket á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskápum, útgengt á suðursvalir. Parket á gólfi.
Þrjú barnaherbergi með fataskáp í tveimur þeirra og parket á gólfi.
Baðherbergi (endurnýjað 2023) er flísalagt með walk in sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn.

Bílskúr (48,4 fm) er með rafmagn, vatn og hita. Búið er að útbúa herbergi í öðrum enda bílskúrs ásamt litlu baðherbergi með upphengdi salerni og sturtuklefa - möguleiki á útleigueiningu.
Stæði fyrir 3 bíla fyrir framan húsið.


Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan síðustu árin:
**Eldhús ásamt tækjum, rafmagni og vatnslögnum í eldhúsi.
**Baðherbergi efri og neðri hæðar ásamt rafmagni þar.
**Þvottahús, innréttingar og gólfefni.
**Gólfefni neðri hæðar og á baðherbergi efri hæðar

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnabraut 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Tjarnabraut 2
Tjarnabraut 2
260 Reykjanesbær
77.4 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Skoða eignina Lerkidalur 18
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Lerkidalur 18
Lerkidalur 18
260 Reykjanesbær
104 m2
Raðhús
312
720 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Leirdalur 14
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Leirdalur 14
Leirdalur 14
260 Reykjanesbær
85.2 m2
Raðhús
312
797 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 14
Skoða eignina Kirkjuvegur 14
Kirkjuvegur 14
230 Reykjanesbær
114.4 m2
Fjölbýlishús
313
594 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin