Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Glæsilegt mikið endurnýjuð 4ra herbergja útsýnisíbúð á 3.hæð (efstu hæð) með stæði í lokaðri bílageymslu. Eignin var að mestu leiti endurhönnuð útlitslega að innan fyrir um 5 árum síðan af Sæju innanhússarkitekt. Gluggar eru á íbúðinni í 3 áttir sem gerir hana einstaklega bjarta skemmtilega. Tvennar svalir eru á íbúðinni og sér þvottaherbergi er innan íbúðar. Vandað gegnheilt niðurlímt viðarparket er á gólfum í öllum rýmum fyrir utan votrýmum. Aðeins eru sex íbúðir í húsinu, tvær íbúðir á hverri hæð. Húsið er gott og útsýnið er stórfenglegt.
Stutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði Fram, verslanir og Golfklúbb GR í Grafarholti.
Frábærar gönguleiðir eru allt í kringum Grafarholtið.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar:Gott bílaplan er við hlið hússins sem leiðir að aðalinngangi hússins sem er á 1.hæð þess. Hægt er að keyra niður með húsinu og þaðan er keyrt inn í bílakjallarann sem er skráð á hæð -1. Mikið svæði er í kringum húsið sem gerir útsýnið frá íbúðinni en fallegra og víðara.
Gengið er upp tvær hæðir frá anddyri hússins upp að íbúðinni um rúmgóðan bjartan stigagang.
Forstofa: Komið er inn í opna forstofu með tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft. Opið er frá forstofunni inn að gangi sem leiðir að alrými íbúðarinnar.
Alrými: Eldhús, borðstofa, setustofa.
Eldhús: Eldhúsið er mjög rúmgott með gluggum í þrjár áttir og útgengi á svalir. Innréttingin er í vinkil + stór eyja. Skápar eru í koxgráum lit og ljósri borðplötu. Ofn er í vinnuhæð og vaskur er undirfelldur. Tveir vínkælar eru í eyjunni. Eldhús einkennist af miklu skápaplássi, góðu vinnuplássi og glæsilegu útsýni. Flísar eru á gólfi.
Borðstofa: Fyrir frama eldhúseyjuna er rúmgóð borðstofa með fallegu parketi á gólfi. Rýmið býður upp á stórt og langt borðstofuborð.
Setustofa: Setustofan er í endarýmisins með glugga í tvær áttir. Fallegt parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er með ljósum flísum á gólfi og á veggjum. Falleg og stílhrein innrétting er á vegg með ljósri borðplötu og ofan á liggjandi handlaug. Stór spegill með hulinni lýsingu er á vegg. Baðkar er með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi. Handklæðaofn er á vegg. Salernið er upphengt og vatnskassinn er innbyggður í vegginn.
3 x svefnherbergi: svefnherbergin eru þrjú öll með falleg parketi á gólfi. Góður fataskápur sem nær upp í loft er í hjónaherberginu ásamt því að gengið er þar út á hinar svalir íbúðarinnar.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er með flísum á gólfi og vinnuvaski.
Geymsla: Sér geymsla er í sameign. 7,7 m2. Innaf stæði í bílageymslunni.
Bílageymsla: Íbúðinni fylgir rúmgott stæði í lokaðri bílageymslu. Stæðið er óvenju breytt og staðsett í alveg sér rými. Geymsla íbúðarinnar er inn af stæðinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is