Garðatorg eignamiðlun kynnir til sölu bjarta og rúmgóða þriggja herbergja íbúð með svölum á 2. hæð litlu fjölbýlishúsi við Hrísmóa 10 í Garðabæ.
Hér er um að ræða vel skipulagða eign í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 1984. Íbúðin er með stóru svefnherbergi, öðru minna, stofu, borðstofu, eldhúsi, litlu þvottahúsi og stórum svölum.Bókið skoðun: Unnur, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.isNánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi og góður fataskápur.
Stofa og borðstofa: Bjart alrými með fallegum gluggum og parketi á gólfi. Gengið er út á rúmlega 12fm svalir úr borðstofu.
Eldhús: Innrétting með góðu skápaplássi, helluborði, bakarofni og háfi. Korkur á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með stórum fataskápum, korkur á gólfi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi II: Korkur á gólfi
Baðherbergi: Hvít innrétting með skúffum undir vaski, spegill með hliðarskápum, sturtuklefi og baðkar. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er innan íbúðar, hillur á vegg, vaskur með lítilli skápainnréttingu og flísar á gólfi.
Í kjallara er sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Fyrir framan húsið er sérmerkt bílastæði auk sameiginlegra bílastæða.
Birt stærð eignar er 93,7fm samkvæmt HMS, þar af er geymsla 5,7fm.
Eignin er staðsett á vinsælum stað í Garðabæ. Íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í göngufæri og stutt er í matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu og apótek á Garðatorgi og í Litlatúni. Leikskólarnir Kirkjuból og Bæjarból eru í næsta nágrenni sem og Flataskóli, íþróttasvæði Stjörnunnar og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ.**Fasteignamat ársins 2026 er kr 72.200.000.-**Þetta er áhugaverð eign á góðu verði sem býður upp á ýmsa möguleika**Nánari upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteingasali, s:8660507 eða unnur@gardatorg.is Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð