Fasteignaleitin
Opið hús:11. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 7. nóv. 2026

Norðurtún 7

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
194.1 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
772.282 kr./m2
Fasteignamat
130.850.000 kr.
Brunabótamat
98.400.000 kr.
Mynd af Andri Freyr Halldórsson
Andri Freyr Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2081627
Landnúmer
123451
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt.
Raflagnir
Upprunalegt.
Frárennslislagnir
Upprunalegt.
Gluggar / Gler
Upprunalegt/Endurnýjað að hluta.
Þak
Upprunalegt.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Viðarverönd.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Andri Freyr Halldórsson lgfs. & Lind fasteignasala kynna með stolti:
Virkilega fallegt einbýlishús í vinsælu hverfi á Álftanesi. Húsið er með fimm til sex svefnherbergjum og er á einni hæð með innbyggðum bílskúr samtals 194.1 fm.
Stór og falleg timburverönd með Saunu ásamt heitum & köldum pottum. Stór og rúmgóð aðkoma sem rúmar fjóra bíla. 

Skráð stærð eignar skv. FMR er 194,1 fm. Eignin skiptist í íbúð 144,5 fm og 49,6 fm tvöfaldur bílskúr.


Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lgfs  // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS


*Einbýli á einni hæð.
*Stór afgirt timburverönd með Saunu ásamt heitum & köldum pottum.
*Stór eignarlóð 900.fm.
*Stór bílskúr.
*Bílastæði fyrir fjóra bíla.
*Falleg og gróin lóð.
*Rúmgóð herbergi.


Forstofa: með flísum á gólfi. Fataskápur.
Stofa/borðstofa: í björtu alrými. -Stórir og bjartir gluggar. 
-Útgengt er úr stofu út á glæsilega timburverönd -Sauna, heitur & kaldur pottur ásamt útisturtu.
Eldhús: er bjart og aflokað að hluta og borðkrók. Eldhús er rúmgott með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp, ofn er í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi 1: rúmgott með harðparketi á gólfi og vel skipulögðu fataherbegi innaf.
-Bílskúr hefur verið breytt og hjónaherbergi komið fyrir þar, ásamt svefnherbergi 2. 
Svefnherbergi 2: með harðparketi á gólfi og fataskápum og innbyggðum hillum.
Svefnherbergi 3: með harðparketi á gólfi og fataskáp. 
Svefnherbergi 4: með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 5: með harðparketi á gólf, staðsett inn af stofu/borðstofu.
-Möguleiki á 6. svefnherberginu þar sem herbergi 3. var stækkað og breytt í eitt rými á sínum tíma. Veggur tekinn og herbergi stækkað.  

Baðherbergi 1: var endurnýjað (2019) með fallegum náttúru flísum í hólf & gólf.
-Walk-in sturta & baðkar, upphengt salerni og snyrtileg innrétting með tveimur handlaugum. Innbyggður handklæðaofn & hillur. Falleg lýsing er einkennandi fyrir baðherbergið.
Baðherbergi 2: með flísum í hólf & gólf. Innrétting með handlaug & upphengt salerni.
Þvottahús: með nýlegri innréttingu frá HTH ásamt tengi fyrir skolvask. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla/bílskúr: staðsett í í bílskúr.
Geymsluskúr/verkfæraskúr.
Bílskúr, 49.6 fm:  Hefur verið breytt í íveru rými að hluta en auðvelt að breyta til baka.
-Geymsluloft staðset yfir bílskúr.

Bílastæði fyrir fjóra bíla með hita í plani.
Lóð: Fallega gróin og vel hirt lóð, -Stór afgirt timburverönd með Saunu ásamt heitum & köldum potti.
-Afgirt hundagerði á austurhlið húsins. 


Álftanes er eftirsótt og fjölskylduvænt hverfi sem nýtur einstakrar náttúrufegurðar og rólegs andrúmslofts. Svæðið er umkringt fallegum strandlengjum, gönguleiðum og náttúruperlum sem bjóða upp á fjölbreytta útivist allt árið. Sterkt samfélag einkennir Álftanes þar sem þjónusta, skólar og íþróttaaðstaða eru í næsta nágrenni. Stutt og öruggt göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús, sem gerir svæðið sérstaklega hentugt fyrir fjölskyldur á öllum aldri.

*Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN. 

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  
Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/02/201542.100.000 kr.50.000.000 kr.194.1 m2257.599 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
49.6 m2
Fasteignanúmer
2081627
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.650.000 kr.

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tungurimi 3
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Tungurimi 3
Tungurimi 3
806 Selfoss
178,8 m2
Einbýlishús
423
425 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Skoða eignina Hólprýði 5
Bílskúr
Skoða eignina Hólprýði 5
Hólprýði 5
210 Garðabær
282,1 m2
Einbýlishús
724
886 þ.kr./m2
250.000.000 kr.
Skoða eignina Bakkabyggð 4
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Bakkabyggð 4
Bakkabyggð 4
625 Ólafsfjörður
208,5 m2
Einbýlishús
43
50 þ.kr./m2
10.500.000 kr.
Skoða eignina Blikastígur 16A
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Blikastígur 16A
Blikastígur 16A
225 Garðabær
217,6 m2
Einbýlishús
514
758 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin