Hólabraut 19 neðri hæð.
Mjög skemmtileg 4ra herbergja íbúð fallegu húsi við miðbæ Akureyrar - Stærð 104,6m² Stór steyptur pallur er við hús með timburskjólveggjum og tengi fyrir heitan pott.
Eignin skiptist í forstofu, geymslu, eldhús, stofu,borðstofu, tvö svefnherbergi, hol, baðherbergi og þvottahús/hurð út á pall.
Forstofa er með flísum á gólfi, hvítum fataskáp.
Geymsla innaf forstofu.
Eldhús með hvítri innréttingu, límtré á borðplötum, tveimur stórum gluggum, parket á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur í eldhúsi.
Stofa/borðstofa opið á milli stofu og borðstofu, rúmgott með fallegum gluggum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er með stórum hvítum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi er með fataskáp og parket á gólfi
Hol með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með spónlagðri innréttingu með dökkum við, flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi. Opnanlegur gluggi er þar.
Þvottahús/hurð út á pall með flísum á gólfi.
Pallur mjög fallegur steyptur með timburskjólveggjum með hitalögn. Tengi fyrir heitan pott.
Annað:
- Malbikað bílaplan við hús.
- Sér mælir fyrir hita og rafmagn.
- Engin sameign nema óskipt lóð.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir.
Nánari upplýsingar í síma 571-9991 eða á fsfasteignir@fsfasteignir.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.