BYR fasteignasala kynnir AUSTURMÖRK 28A íbúð 205, 810 Hveragerði. Ný þriggja herbergja endaíbúð á efri hæð í fjölbýlishúsi í Tívolíbyggð Hveragerði.
Húsið er vel staðsett í miðsvæðis í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu, útivist og ýmiskonar afþreyingu, sjá nánar kort hér.
TIL AFHENDINGAR 15. desember 2024. VELKOMIN Í HVERAGERÐI!Eignin skiptist í íbúð 76.8 m² og geymslu 4.2 m² samtals 81.0 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.
Aðalverktaki JÁVERK ehf. T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Burðarþolshönnun og lagnahönnun Verkfræðistofa Reykjavíkur. Raflagnahönnun Voltorka ehf.
Tívólibyggð samanstendur af sjö fjöleignarhúsum með samtals 80 íbúðum. Smellið hér fyrir heimasiðu Tívolíbyggðar.Íbúðin er byggð samkvæmt kröfum Umhverfisstofnunar til að hljóta Svansvottun að framkvæmdum loknum.
Svansvottaðar íbúðir eru almennt taldar betri fyrir umhverfið og heilsuna, enda eru strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í öllu byggingarefni.
Í íbúðinni hefur verið tryggð góð innivist með góðri loftræstingu og hljóðvist. Hönnun byggingarinnar miðar að því að orkunotkun sé hagkvæm. Smellið hér fyrir upplýsingar um Svansvottun.
Nánari lýsing:Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er frá alrými út á
svalir til suðurs. Eldhús, sérsmíðuð innrétting, heimilistæki frá AEG spanhelluborð og gufugleypir, ofn, kæli- og frystiskápur sem og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu.
Vaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsinu og innbyggð lýsing undir efri skápum.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni bæði með fataskápum.
Baðherbergi, flisar á gólfi og á veggjum í sturtu, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Grohe blöndunartæki. Gólfhiti er á baðherbergi.
Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Í sameign er
sér geymsla og sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla. Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu. Flísar verða á gólfum baðherbergis. Öðrum gólfum er skilað án gólfefna
með kvöðum um val á Svansvottuðu gólfefni.
Innréttingar eru allar sérsmíðaðar frá Selós. Íbúð er upphituð með ofnum á lokuðu kerfi með varmaskipti. Gólfhiti er á gólfi baðherbergis.
Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð. Vélrænt útsog er í geymslum.
Í svansvottuðum byggingum hefur allt byggingarefni sem sett er í bygginguna verið samþykkt og uppfyllir kröfur svansins.Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar sömu kröfur eins og t.d. gólfefni og allt undirlag sem því fylgir, málning og speglar.
Austurmörk 28 er 9 íbúða, tveggja hæða hús. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með ál-trapísuklæðningu frá Málmtækni.
Þakplata er staðsteypt frágengið með þakdúk frá Sika og þakmöl. Gluggar og hurðar eru álklæddir timburgluggar frá Ideal Combi.
Lóð er frágengin með malbikuðum bílastæðum og stígum. Yfirborð við inngang sem og sérafnotareitir er hellulagt. Önnur svæði eru frágengin með grasi.
Sameiginleg bílastæði eru á lóð. Tengipunktar fyrir rafbílahleðslur eru í grennd við bílastæði. Sameiginleg sorpskýli eru á lóð.
Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum en er ekki talið upp í skilalýsingu fylgir þannig ekki íbúðum.
Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar.
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.
Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag vegna sameignar.