Hraunhamar fasteignasala kynnir einbýlishús með tveimur íbúðum. vel staðsett innarlega í lokuðum botnlanga vel staðsett á Hvaleyrarholtinu í Hafnarfirði. Húsið er 314 fermetrar, þar af bílskúrinn 48,8 fermetrar. Húsið er þremur hæðum.
Jarðhæðin er skráð 66,5 fermetrar. Fyrsta hæðin er skráð 91,6 fermetrar og einnig eru þar tveir sólskálar 28 fermetrar og 21,3 fermetrar. Rishæðin er skráð 50 fermetrar og sólskáli 8,2 fermetrar. Skipting eignarinnar:Aðalinngangur er á fyrstu hæð, Forstofa með fataskápum. Gott hol, Eldhús með snyrtilegri innréttingu, borðkrókur í eldhúsinu. Innaf eldhúsinu er þvottahús þar er utangengt út í garðinn.
Flísalagt baðherbergi með innréttingu og baðkari og sturtuklefa. Rúmgóð stofa og borðstofa og þaðan er utangengt út í sólskála sem þarfnast endurnýjunar við.
Fínt herbergi, gengið niður í rúmgóðan sólskála og þar er einnig innangengt á jarðhæðina.
Baðherbergi með innréttingu og hornbaðherbergi.
Á jarðhæðinni er fín tveggja herbergja íbúð með sérinngangi. Íbúðin er ekki samþykkt. þar er eldhús með snyrtiegri innréttingu, björt stofa, baðherbergi með innréttingu og sturtuklefa.
Búið er að breyta innra skipulagi frá upphaflegum teikningum.
Rúmgóður sérstæður bílskur með tveimur bílskúrshurðum, rafmagn og kalt vatn. þarf að laga heitavatnslögn í bílskúrinn.
Lóðin er falleg með beðum, grasflöt og trjágróðri, hellulagt bílastæði.
Þetta er eign sem bíður upp á marga möguleika, en þarfnast lagfæringar við. Um er að ræða dánarbú og er kaupendum bent á að skoða húsið vel og hafa í huga við skoðun.
Nánari upplýsingar veita:
Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali, s.698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson, sölustjóri, s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.