Fasteignaleitin
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 21. ágúst 2026

Álftaland 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
119.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
836.683 kr./m2
Brunabótamat
62.900.000 kr.
Byggt 1982
2. hæð
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20366281
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Falleg og töluvert endurnýjuð endaíbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Álftaland 7 í Fossvoginum. Eignin er skráð alls 119,4 fm og skiptist í forstofu, eldhús opið til borðstofu og stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Bætt hefur verið við þriðja svefnrýminu en það er gluggalaust og ekki á teikningu. Yfirbyggðar svalir til suðurs úr stofu og svalir úr hjónaherbergi til vesturs.  Í sameign er einnig auka svefnherbergi sem fylgir íbúð með aðgangi að sameiginlegu salerni. Sérgeymsla íbúðar er staðsett í sameign og sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu. Eftirsótt staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og fallegar göngu- og hjólaleiðir. Íbúðin er laus við kaupsamning.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:  
Aðkoman að húsinu er mjög snyrtileg og aðeins ein íbúð er á hæð (einungis fimm íbúðir í húsinu). Gluggar eru á þrjá vegu í íbúðinni og er hún því einstaklega björt. Glæsilegt útsýni til suðurs og víðar.
Íbúðin er skráð 100,5 fm, svefnherbergi í sameign 13,2 fm. og sérgeymsla 5,7 fm. Samtals birt stærð eignarinnar 119,4 fm. og að auki hlutdeild í sameign.
Forstofa er með tvöföldum nýlegum fataskáp.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað og með fallegri ljósri vaskinnréttingu með góðu skápaplássi, sturta með glerþili og upphengt salerni. Flísar eru á gólfum og vegg að hluta, góður opnanlegur gluggi.  
Eldhús er nýlega endurnýjað með fallegum, stílhreinum innréttingum og kvartssteinn á borðum.  Mjög gott skápapláss er í innréttingu, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og einnig tækjaskápur.  Í eldhúseyju er spanhelluborð og vifta.
Borðstofa og stofa er í rúmgóðu og björtu alrými, stórir gluggar með glæsilegu útsýni. Útgengt er út á svalir til suðurs með svalarlokun. 
Hjónaherbergi (1) er mjög rúmgott og bjart með miklu skápaplássi, parket á gólfum. Út hjónaherbergi er útgengt út á vestur svalir.
Svefnherbergi (2) er einnig mjög rúmgott og bjart með tvöföldum fataskáp, parket á gólfum.
Svefnherbergi (3) er staðsett í sameign um 13,7 fm. að stærð (skráð sem geymsla) með opnanlegum glugga og nýlegu fallegu harðparketi á gólfi. Aðgengi er að sameiginlegri salernisaðstöðu í sameign.
Sérgeymsla íbúðar er 5,7 fm. að stærð, staðsett í sameign.
Þvottahús er sameiginlegt, mjög snyrtilegt þar sem hver og einn er með tengi fyrir sína vél. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús.
Garður er sameiginlegur, mjög snyrtilegur með hellulagðri verönd bakatil, tyrfð og með trjágróðri, sjávargrjót er upp við hús.

Helstu endurbætur og viðhald síðustu ára
2026: Austurhlið hússins var máluð. 
2025: Múrviðgerðir á austurhlið og skipt um gler að hluta.
2024: Parket íbúðar pússað upp og lakkað og settir nýjir fataskápar að hluta.
2022: Eldhús endurnýjað.
2020-2021: Húsið sprunguviðgert og málað, svalir endurmúraðar og sett ný útiljós á svalir. Skipt var um þrýstijafnara á heitu vatni í sameign. Tréverk endurnýjað í þakkanti.
2018: Baðherbergi gert upp. 

Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

Athugið að seljandi eignast íbúðina í makaskiptum og hefur því aldrei búið í eigninni. 

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskihlíð 16
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:27. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Eskihlíð 16
Eskihlíð 16
105 Reykjavík
119.1 m2
Fjölbýlishús
311
730 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 13
Skoða eignina Sóleyjarimi 13
Sóleyjarimi 13
112 Reykjavík
142.7 m2
Fjölbýlishús
322
735 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 11
Bílastæði
Skoða eignina Sóleyjarimi 11
Sóleyjarimi 11
112 Reykjavík
97.7 m2
Fjölbýlishús
312
838 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 15
Opið hús:25. ágúst kl 17:15-17:45
Skoða eignina Hjallabraut 15
Hjallabraut 15
220 Hafnarfjörður
101.3 m2
Fjölbýlishús
312
631 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin