Fasteignasalan TORG kynnir: Laus við kaupsamning. Glæsileg endurnýjuð sérhæð innst í götu með nægum bílastæðum. Eignin er 131,4 fm þar af bílskúr 24,8 fm sem innréttaður hefur verið sem studioíbúð. Íbúðin hefur öll verið endurinnréttuð og var þeirri framkvæmd að ljúka, íbúðin skiptist í eldhús með vandaðri innréttingu og tækjum, stór og björt stofa, 3 svefnherbergi og glæsilegt baðherbergi.
Allar innréttingar, hurðar, gólfefni og tæki eru ný í íbúðinni auk þess sem dregið hefur verið nýtt rafmagn í alla íbúðina og rofar endurnýjaðir, neysluvatnslagnir, ofnalagnir og ofnar.
Glæsileg íbúð með útleigumöguleika í þríbýlishúsi sem hefur fengið mjög gott viðhald og staðsett í hjarta borgarinnar.Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma: 822-2225 eða á thora@fstorg.isSækja söluyfirlit hérNánari lýsing: Forstofa, harðparketi á gólfi. Frá forstofu er gengið niður í sameign.
Eldhús tengist stofu í opnu rými, í eldhúsi er ný sprautulökkuð innrétting með miklu skápaplássi og nýjum vönduðum tækjum, ísskápur er innfelldur í innréttingu, harðparket á gólfi.
Stofa er mjög rúmgóð og björt, stofan tengist eldhúsi í opnu rými, harðparket á gólfi og útgengi á suður svalir.
Svefnherbergi eru 3, tvö mjög rúmgóð, harðparket á gólfum.
Baðherbergi er glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf, vönduð innrétting, stór flísalögð sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn. Hiti er í gólfi.
Bílskúr er innréttaður sem studioíbúð,
stofa / svefnrými og eldhús er í opnurými,
eldhús er með hvítri innréttingu, vönduðum tækjum og innfelddum ísskáp,
baðherbergi með hvítri innréttingu, sturtuklefa og flísum á gólfi.
Geymslur eru 2 í sameign, önnur geymslan er köld.
Þvottahús er sameiginlegt í sameign með 2 stæði fyrir þvottavélar.
Húsið lítur vel út að utan, skipt var um þak hússins, þakrennur og skorsteinn fjarlægður í september 2025. Húsið steinað fyrir um 6 árum og drenað fyrir 6-7 árum. Skipt var um flesta glugga hússins fyrir 2 árum. Vatnshalli á svalagólfi leiðréttur og múrað 2022, sett nýtt svalahandrið og svalahurð. Rafmagnstafla hússins var endurnýjuð í sept-okt 2025.
Lóð er sameiginleg og fallega gróin, lóðin er afgirt með steyptum veggjum þar sem garður snýr að götu.
Bílastæði er fyrir framan bílskúr en einnig eru næg bílastæði sunnan megin við húsið í enda götunnar.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.