Rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á 2. hæð auk tveggja bílastæða í lokaðri bílageymslu í góðu fjölbýlishúsi í Rimahverfinu í Grafarvogi. Annað bílastæðið er lokað með bílskúrshurð. Þvottahús er innan íbúðar. Baðherbergi var endurnýjað árið 2022. Stutt í alla helstu þjónustu, leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli í göngufæri.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 161,2fm. og þar af eru bílastæði alls 51,6 fm. og geymsla 10,1fm.
Nánari lýsing: Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. Stofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er út á stórar suð/vestur svalir úr stofunni. Eldhús með innréttingu með efri og neðri skápum, nýlegt Smeg gashelluborð, nýlegur Smeg ofn, tengi fyrir uppþvottavél, gufugleypir, flísar á milli skápa, eldhúskrókur á milli eldhúsins og stofunnar og parket á gólfi. Hjónaherbergi með mjög góðu skápaplássi, sérsmíður fataskápur og dúkur á gólfi. Svefnherbergi II rúmgott með dúk á gólfi. Svefnherbergi III með dúk á gólfi. Baðherbergi var uppgert árið 2022, innangeng sturta, gott skápa- og borðpláss, upphengt salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins með hillum, málað gólf. Í bílakjallara fylgja tvö stæði og er annað þeirra nýtt sem vinnuaðstaða/geymsla og er lokað með bílskúrshurð. Innangengt er úr húsi í bílakjallara.
Anddyri með póstkössum og dyrasíma frá 2021, flísar á gólfi. Stigahús með teppi. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign, þaðan er útgengt út í bakgarð. Sorpgeymsla er í lokuðu rými við anddyri. Hleðslustaur í eign húsfélagsins Berjarima 2-8 er við bílastæði framan við húsið. Sameiginleg dekkjageymsla er í húsinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Sprunga í einni rúðu í stofunni en hefur verið óbreytt síðan seljendur keyptu eignina árið 2007.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
30/08/2007
22.980.000 kr.
28.000.000 kr.
161.2 m2
173.697 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.