Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna bjarta og vel skipulagða 3ja. herbergja endaíbúð í nýlegu lyftuhúsi á 4. og efstu hæð ásamt stæði í bílageymslu við Hafnarbraut 12G í Vesturbæ Kópavogs. Tvö rúmgóð svefnherbergi, bjart alrými með útgengt á suður svalir. Sjá myndband af eigninni hérNánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteignasali í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.isNánari lýsing eignar:Íbúðin er parketlög með fallegu harðparketi en baðherbergi er flísalagr, gólf og hluti veggja.
Komið er inn í rúmgott
anddyri (5fm) með góðum fataskáp.
Úr anddyri er komið á
gang þaðan sem gengið er inn á bað og herbergi en í framhaldi er alrými.
Baðherbergi (6fm)er flísalagt, gólf og hluti veggja. Hvít baðinnrétting með góðu skúffuplássi, hvítri borðplötu og niðurfelldri handlaug. Vegghengdur speglaskápur með lýsingu. Walk-in sturta og vegghengt salerni. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Alrými / Stofa, eldhús, borðstofa (30fm)
: Bjart og opið rými með glugga á þrjá vegu og útgengt á rúmgóðar
suður svalir (7fm). Eldhúsinnrétting er hvít, sprautulökkuð, með stál höldum og nær upp í loft, AEG bakaraofn og helluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar suður svalir.
Hjónaherbergi (12fm) er rúmgott með fjórföldum hvítum fataskápum og glugga í suður.
Barnaherbergi (8fm)er rúmgott með glugga í suður.
Geymsla (7,6fm) er í sameign.
Stæði í bílageymslu merkt E11.
Björt, falleg og vel skipulögð íbúð á vinsælum stað í vesturbæ Kópavogs. Brikk bakarí og Brasserie Kársnes eru í næsta húsi. Heillandi umhverfi við sjávarsíðuna með fallegri náttúru og fjölbreyttum afþreyingarmöguleikum.
Eignin Hafnarbraut 12 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign
251-0883, birt stærð 80.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 04-03, auk stæði í bílageymslu merktu 02-E11, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse í síma 7927576, eða gudmunda@gimli.is
Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.