CROISETTE.HOME og Karl Lúðvíksson Löggiltur Fasteignasali kynna í einkasölu snyrtilegt raðhús við Tunguveg 42. Eignin er á þremur hæðum sem skiptist þannig að á jarðhæð er eldhús, borðstofa og stofa með útgengi út í garð. Í kjallara er stórt þvottahús og geymsla. Á efri hæð er baðherberi og tvo svefnherbergi en þar voru áður tvo barnaherbergi en einu hefur verið breytt og stækkað í eitt. Stutt er í Réttarholtsskóla, Breiðagerðisskóla og leikskóla í nágrenninu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is. Nánari lýsing:Forstofa: Dökkgráar flísar á gólfi, stór og rúmgóður fataskápur. Gengið niður í þvottahús og geymslu úr forstofu.
Stofa/borðstofa: Opin og björt stofa en útgengt er út á sólpall og garð til suðurs úr stofunni. Eldhús og stofa mynda opið og skemmtilegt rými. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Innrétting er smekkleg og snyrtileg með góðum tækjum. Gott skápapláss, harðviður í borðplötu, dökkgráar flísar milli skápa. Harðparket á gólfi
Hjónaberbergi: Gott herbergi með fataskápum, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Gott herbergi með stóru fataherbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með baðkari með sturtu, góð lítil innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og hluta af veggjum.
Þvottahús og geymsla: Gott þvottahús og stór geymsla er í kjallara. Ekki full lofthæð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því CROISETTE HOME skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf