Fasteignaleitin
Opið hús:22. mars kl 13:00-13:30
Skráð 18. mars 2026

Fjölnisvegur 20

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
100.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
896.311 kr./m2
Fasteignamat
89.050.000 kr.
Brunabótamat
42.800.000 kr.
EA
Elín Alfreðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2009154
Landnúmer
102683
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurnýjað að hluta
Raflagnir
Allt endurnýjað í íbúð 1988
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
endurnýjaðir 2005-2007
Þak
Þarfnast málunar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
32,628
Upphitun
hitaveita sér hitamælir
Inngangur
Sameiginlegur
**BÓKIÐ EINKASKOÐUN** 100,3 fm rishæð á tveimur hæðum; hæðin sjálf er 100.3 fm en að auki er risloft sem er um 15 fm að gólfleti sem ekki er skráð í fermetratölu. Valhöll og Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8993090 eða elina@valholl kynna: efstu hæð (ris) í þríbýli við Fjölnisveg 20. Sameiginlegur inngangur er með miðhæð í glæsilegu steinhúsi byggðu árið 1930. Íbúðin er með stofu, 2 svefnherbergjum og borðstofu ásamt eldhúsi og baðherbergi með útgengi á svalir á hæðinni. Að auki er risloft sem búið er að innrétta og vel hægt að nýta sem auka herbergi t.d. fyrir ungling, sjónvarpsrými eða tómstundaaðstöðu en það rými er ekki skráð í fermetratölu eignarinnar. Inngangur í risið er frá stigagangi. Lítil útigeymsla fylgir á lóðinni. Stutt í menningu og mannlíf miðbæjarins, Háskóla Íslands og Landspítala við Hringbraut.
Nánari lýsing:
Komið er upp tröppur og inn um sameiginlegan inngang, þar er forstofa og íbúð á miðhæð með inngang beint af augum en rishæðin upp fallegan sérsmíðaðan stiga. Þar uppi er stigapallur og inngangur í íbúðina og þar er einnig stigi upp á risloftið. Þegar inn er komið tekur við gangur sem leiðir inn í aðrar vistaverur. Á vinstri hönd er stofa og inngangur frá stofu í svefnherbergin tvö., annað þeirra opnast einnig fram á stigapallinn. (á hæðinni fyrir neðan er búið að opna úr stofu og inní annað herbergið og gera tvöfalda stofu). Á hægri hönd er baðherbergi með þvottaaðstöðu og þar er gengið út á svalir og eldhús og herbergi sem nú er notað sem borðstofa er við enda gansins. Fallegt vandað eikarparket er á flestum gólfum og risloftið er með upprunalegum gólfþjölum.
Forstofa: Á stigapalli fyrir framan íbúðina er pláss til að geyma skó og yfirhafnir. 
Gangur: Parketlagður.
Svefnherbergi l: Parketlagt og gengið er inn í það frá stofu. Fataskápur í herbergi. (búið er að opna inní þetta herbergi frá stofu og það notað sem borðstofa á hæðinni fyrir neðan)  
Svefnherbergi ll: Parketlagt og gengið inní það frá stofu en einnig er hurð á bakvið skápinn sem er hægt að opna fram á stigapall og/eða loka inn í stofu og búa þannig til forstofuherbergi.  
Eldhús: Gólfhiti er í eldhúsi sem er flísalagt og með fallegum stórum gluggum og hvítum innréttingum með flísum á milli skápa og gashelluborði. Tengi fyrir uppþvottavél er í eldhúsi.  
Borðstofa: Herbergi við hlið eldhúss er notað sem borðstofa.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og flísar á veggjum, vegghengt wc, það vantar flísar ofan á klósettkasann. Innrétting við vask með skápum og baðkar með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi. 
Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Geymslurými: Lítið geymslurými er í útihúsi á baklóð er skráð tæpir 4fm. Einnig er súðageymsla uppi á risloftinu sem er stúkuð af með skápum.
Húsið að utan:  Virðist vera í góðu ástandi og ekki hefur verið þörf á miklum múrviðgerðum í gegnum árin. Þakjárn virðist vera í nokkuð góðu ástandi en það þarfnast málunar og þakrennur þarfnast endurnýjunar. Búið er að drena í kringum húsið.Húsið og garðveggir var málað ásamt því að skipt var út öllum gluggum á árunum 2005-2007. Árið 2025 voru útitröppur lagfærðar.
Lóðin: Er virkilega falleg og gróin í góðri rækt með tyrfðri flöt og gróðri. 
Staðsetning eignarinnar er frábær á fallegum og rólegum stað í hjarta miðborgarinnar gengt Landspítalanum við Hringbraut. .
Ekki hefur verið starfandi húsfélag í húsinu. Eigendur hafa greitt fyrir framkvæmdir eftir þörfum. Verið er að vinna í að breyta eignaskiptasamningi þar sem geymsla jarðhæðar er ekki rétt sráð og greiðir seljandi hlut íbúðar í þeirri vinnu.     
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valhöll.is.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnargata 10
Skoða eignina Tjarnargata 10
Tjarnargata 10
101 Reykjavík
247.7 m2
Atvinnuhúsn.
22
Fasteignamat 113.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Úugata 8
Bílastæði
Opið hús:19. mars kl 17:30-18:00
Skoða eignina Úugata 8
Úugata 8
270 Mosfellsbær
201 m2
Fjölbýlishús
32
432 þ.kr./m2
86.800.000 kr.
Skoða eignina Brekkugata 1
Bílastæði
Opið hús:22. mars kl 16:00-16:30
Skoða eignina Brekkugata 1
Brekkugata 1
210 Garðabær
109.4 m2
Fjölbýlishús
312
846 þ.kr./m2
92.500.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 íb. 501
Bílskúr
Opið hús:21. mars kl 13:00-13:30
Hnjúkamói 16 íb. 501
815 Þorlákshöfn
135.8 m2
Fjölbýlishús
412
736 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin