Fasteignasalan Hvammur 466 1600Kringlumýri 12 - Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í tvíbýli á Brekkunni - stærð 92,6 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla.
Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum skáp. Úr forstofu er gengið inn á hol.
Eldhús, brún plastlögð innrétting með ljósri bekkplötu og flísum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Hol nýtist að hlutatil sem borðstofa í dag, þar er ljóst harðparket á gólfi og stór gluggi til austurs.
Stofa er með ljósu harðparketi á gólfi og stórum gluggum til tveggja átta.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar á gólfi og veggjum, grá innrétting og speglaskápur, upphengt wc, walk-in sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél inn á baðherberginu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og fataskápum.
Gengið er inn í kjallaranum um sér inngang á austurhlið hússins. Þar er sameiginlegt
þvottahús og sér geymsla.
Geymslan í kjallaranum er skráð 4,8 m² að stærð, með lökkuðu gólfi, hillum og opnanlegum glugga.
Timbur verönd var reist á framlóðinni á árunum 2018-19 og tilheyrir hún efri hæðinni.
Á baklóðinni er nýlegur geymsluskúr og er hann í sameign með neðri hæðinni.
Annað- Búið er að endurnýja raflagnir innan íbúðar að stærstum hluta og endurnýja rofa og tengla.
- Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð.
- Gólfhiti var lagður í íbúðina árið 2019.
- Gler og gluggapóstar var endurnýjað á árunum 2016-2018.
- Nýleg útidyrahurð er inn í þvottahúsið og nýlegur gluggi í geymslunni.
- Frárennslislagnir úr eldhúsi hafa verið endurnýjaðar út í brunn.
- Þak var yfirfarið og endurbætt fyrir meira en 10 árum þá af fyrri eiganda.
- Húsið var málað að utan fyrir um 5-6 árum.
- Sameiginleg hitaveita.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.