Fasteignaleitin
Skráð 19. júní 2023

Dofraberg 11

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
70 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
784.286 kr./m2
Fasteignamat
54.000.000 kr.
Brunabótamat
36.000.000 kr.
Mynd af Ævar Örn Jóhannsson
Ævar Örn Jóhannsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2074384
Landnúmer
120278
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta, snjóbræðslukerfi lagað að framan
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt / endurnýjaðar að hluta til
Gluggar / Gler
Upprunalegt / skipt hefur verið um þakglugga
Þak
Upprunalegt / Viðgert að hluta og skipt um þakglugga
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita / ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
-Góð fyrstu kaup
-Sólríkar svalir í suðvestur
-Eldhús með eyju
-Laus strax


Íbúðin er skráð 70 fm og tveggja herbergja samkvæmt HMS.
Falleg eign á 1. hæð á eftirsóttum stað í Setberginu.
Friðsælt lítið fjölbýli í botnlangagötu.
Nýlegt parket á öllum gólfum nema baðherbergi sem er dúklagt.
Eldhús með góðu skápaplássi og eyju.
Alrými rúmgott og bjart með gólfsíðum glugga og nýlega málað.
Sameign flísalögð og snyrtileg.

Setbergið hefur lengi verið einn vinsælasti staður Hafnarfjarðar.
Grunnskóli í göngufæri og tjörnin og miðbærinn í næsta nágrenni.
Óspillt náttúran svo gott sem í bakgarðinum með fallegum gönguleiðum.
Stutt að sækja í Urriðavatn og golfvöllinn í Setbergi.

Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.is


Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með stórum góðum fataskáp með speglahurð.
Svefnherbergi er á vinstri hönd, parketlagt og með skápavegg.
Baðherbergi er með dúk á gólfi og flísalagt á vatnsálagsstöðum. Útbúið baðkari með sturtuaðstöðu, hvítri vaskinnréttingu með skápaplássi, hvítum skápum og hillu og baklýstum spegli.
Eldhús og stofa flæða saman í eitt alrými. 
Eldhúsið er með hvítri innréttingu, viðarborðplötu og flísum á milli efri og neðri skápa.
Eyja með helluborði og bakaraofni tengir eldhúsið við stofu og borðstofu sem renna saman í eitt.
Háfur er yfir eyjunni og gott skápapláss í henni og háf yfir.
Stofan er stór og rúmar vel borðstofu og sjónvarpshol.
Útgengt er frá stofu út á sólríkar svalir.

Sérgeymsla er í sameign.
Þvottahús er einnig í sameign - hver með sína eigin þvottavél.
Sameiginleg hjólageymsla með sér inngangi og innangengt í sameign.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/08/202344.950.000 kr.48.600.000 kr.70 m2694.285 kr.
13/04/202133.350.000 kr.38.250.000 kr.70 m2546.428 kr.
20/09/201825.100.000 kr.32.000.000 kr.70 m2457.142 kr.
08/10/201315.500.000 kr.16.700.000 kr.70 m2238.571 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 301
Suðurhella 16 íb. 301
221 Hafnarfjörður
122.4 m2
Fjölbýlishús
413
658 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 302
Suðurhella 16 íb. 302
221 Hafnarfjörður
87.1 m2
Fjölbýlishús
312
768 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 304
Suðurhella 16 íb. 304
221 Hafnarfjörður
75.9 m2
Fjölbýlishús
211
789 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsás 10B
Bílastæði
Skoða eignina Dalsás 10B
Dalsás 10B
221 Hafnarfjörður
96 m2
Fjölbýlishús
312
831 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin