Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími: 862-1110 kynnir:
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS.Afar sjarmerandi og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð á eftirsóttum stað í sundahverfi. Eignin hefur verið endurnýjuð að innan í seinni tíð. Stór pallur við íbúðina með heitum og köldum potti.Nánari lýsing: að utan er komið inn í sameiginlegt
anddyri þar sem gengið er inn í sérgeymslu íbúðarinnar og
sameiginlegt þvottahús. Úr anddyrinu er svo gengið inn í íbúðina og í
hol þaðan sem gengið er inn í vistarverur hennar.
Eldhúsið og stofan eru í björtu opnu rými og úr
stofunni er gengið út á stóran
sólpall. Eldhúsið er með I-laga innrétttingu, neðri skápum og efri að hluta og eyju. Ljósar flísar á gólfi í rýminu. Í holinu eru tveir góðir skápar.
Baðherbergið er með dúklögðu gólfi og flísalögðum veggjum að hluta, innrétting og baðkar.
Svefnherbergið er með flotuðu gólfi og með fataskáp.
Sérgeymsla á hæðinni (við sameiginlega innganginn).
Íbúðarrýmið er skráð 63,4 fm hjá HMS og geymslan 2,8 fm, samtals 66,2 fm.
Stór og góður pallur við íbúðina, sem hún hefur ein aðgang að og með heitum potti og öðrum köldum. Garður og þ.m.t. pallur óskipt sameign skv. eignaskiptayfirlýsingu.Ekkert formlegt húsfélag er starfandi í húsinu og engar samþykktar framkvæmdir framundan en þó hefur verið rætt að mála húsið að utan án þess þó að nokkrar ákvarðanir hafi verið teknar hvað það varðar.
Seljandi hefur ekki búið í íbúðinni og selst hún í því ástandi sem hún er við sýningu. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að skoða eignina sérstaklega vel með teknu tilliti til þessa.Sér hitamælir fyrir íbúðina.
Smelltu hér til að skoða grunnteikningu af eigninni.VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2021, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.