Íbúðaeignir og Halldór Már löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og vel skipulagða 2 - 3 herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi á völlunum í Hafnarfirði. Sérinngangur frá svölum og aðeins tvær íbúðir á svalagangi. Íbúðin er skráð 71,2 fm, auk 6,3 fm sérgeymslu á fjórðu hæð, samtals 77,5 fm samkvæmt fasteignaskráningu.Bókið skoðun í síma 898-5599 eða sendið fyrirspurn á netfangið halldor@ibudaeignir.isNánari upplýsingar um eignina:Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Hjónaherbergi rúmgott með góðum skápum.
Herbergi (skráð sem geymsla) með opnanlegum glugga.
Eldús, borðstofa og stofa í í opnu rými. Góð eikarinnrétting í eldhúsi, helluborð og veggofn.
Stofa er rúmgóð og útgengt á suð-vestur svalir.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaherbergi innan íbúðar, með vaski og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni: Parket nema á baðherbergi, forstofu og þvottahúsi eru flísar.
Geymsla á sömu hæð, með opnanlegum glugga.
Eignin er á völlunum í Hafnarfirði, þar sem er stutt er í fallegar gönguleiðir í leik- og grunnskóla, verslanir og alla almenna þjónustu. Afhending er eftir samkomulagi.
Allar upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 898 5599 eða halldor@ibudaeignir.isÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Íbúðaeignir fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 30% eða hærri.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu skv. gjaldskrá.
-Lántökugjald vegna veðlána, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.