SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu: Bjarta 76,9fm, 3ja herbergja endaíbúð með góðum suðurpalli við Reykás 26 í Árbænum.
Eining samanstendur af: Forstofu/hol, eldhúsi, stofu með útgangi út á pall, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi ásamt geymslu, allt innan íbúðar.
íbúðin er skráð 2ja herbergja en er 3ja herbergja þar sem aukaherbergi var útbúið á kostnað stofu. Nánari lýsing:Forstofa: Sérlega rúmgóður skápur, flísar á gólfi.
Eldhús: Vel meðfarin upprunaleg innrétting, nýlegar flísar á eldhúsbekkjum, nýleg eldavél með ofni í (keypt í lok árs 2023) tengi fyrir uppþvottavél ásamt borðkróki, korkur á gólfi.
Stofa/borðstofa: Hugguleg stofa ásamt borðstofu með útgangi út á skjólsælan sólpall. Parket á gólfi.
Sólpallur: Er 37,5fm að stærð og snýr til suðvesturs, fyrir framan pallinn er fallegur gróin garður með trjám. Pallur er þinglýstur séreign.
Herbergi I: Er rúmgott með góðum skápum. Parket á gólfi.
Herbergi II: Gott herbergi með upprunalegum skáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með skúffum og handlaug ásamt skáp. Baðkar með sturtu í ásamt handklæðaofni. Hiti í gólfi.
Þvottahús: Er með nýlegri innréttingu, er sér og innan íbúðar, .
Geymsla: Rúmgóð sérgeymsla innan íbúðar, (inn af þvottahúsi).
Reykás 26 er á sameiginlegri lóð með Reykás 22 og 24 - Hiti er í gangstétt fyrir utan húsið - 6 íbúðir eru í Reykás 26 - 28 bílastæði eru á lóðinni, 1 fyrir hreyfihamlaða og 9 fyrir framan bílskúra. Búið er að setja upp 4 hleðslustraura.
Að sögn seljenda er viðhald eftirfarandi:
Íbúð:
2025 - Þvottahús innrétting sett upp
2020 - Sólbekkir ásamt eldhúsbekkjum flísalagðir og settir stálkantar
2020 - Sólpallur endursmíðaður og stækkaður auk skjólveggja
2019 - Baðherbergi endurnýjað og lagður hiti í gólf
Sameign: 2025 - Stigagangur múraður, málaður, skipt um teppi, ljósarofar endurnýjaðir ásamt ljósum. Eldvarnir endurnýjaðar.
2025 - Skipt út gluggum ásamt gleri í eldhúsi og stofu í austurátt, skipt um gler í herbergi II.
2025 - Gert við leka í lofti í íbúð 2. h. til v.
2022 - Ástandsskýrsla gerð á Reykási 22-26. Skoðunin var framkvæmd af Verksýn.
2020 - Þakrennur og þakkantur lagfærður
2017 - Gluggar og hurðir málaðar að utan
2015 - Skipt um þakjárn á norðurhlið nr.26
2010 - Svalir vatnsþéttar og dúklagðar
2010 - Skipt um þakjárn á suðurhlið alls hússins
Virkilega góð staðsetning í Árbænum í Reykjavík og stutt í alla þjónustu, leikskóla, skóla, íþróttir, verslanir, heilsugæslu og dásamleg útivistarsvæði í Elliðaárdalnum og upp við Rauðavatn.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.