Betri Stofan fasteignasala kynnir í sölu
SMIÐJUSTÍG 11 B á Flúðum, sem er nýtt glæsilegt 68,6 fm raðhús á einni hæð.
Húsið er innan við 3ja ára gamalt, einstaklega vel skipulagt og vandað með gólfhita. Nánari lýsing: Komið inn í
anddyri,
baðherbergi, opið rými með
eldhúsi,
eyju og
stofu.
2 svefnherbergi. Úr stofu er útgengi út á
pall sem snýr til suðurs.
Eldhús er með hvítlakkaðri vandaðri innréttingum frá HTH með fræstum gripum:
Vönduð eldhústæki frá AEG. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti, spanhelluborð með fjórum hellum og veggofn.
Baðherbergi eru fullbúið með flísum, walk in sturtu með glerveggjum, hvítlökkuð innrétting með spegli, ljósum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfefni eru harðparket á öllum rýmum nema baðherbergi.
Gólfhiti er í öllum rýmum íbúða.
Almennt: Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og afhendast fullbúnar samkvæmt byggingastigi 4 samkv. ÍST 51:2021
Útveggir langhliða eru timbur en allir veggir milli íbúða eru steinsteyptir ásamt gaflveggjum.
Húsin eru klædd að utan með grálituðu innbrenndu áli, þ.e. þak og útveggir ásamt því að gaflar og hluti bakhliðar eru viðarklædd með lerki.
Sérgeymslur fylgja með hverri íbúð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í miðjurými hússins með útgengt í garðinn til suðurs.
Útgengi er úr stofu íbúða í suðurgarð og fylgir sólpallur með hverri og einni íbúð.
Mikil lofthæð er íbúðunum eða tæpir 4,40 mtr. sem eykur á rými, birtu og glæsileika, ásamt því að fallegir bitar setja smekklegan svip.
Risgeymslur eru yfir hverri íbúð, þ.e. yfir baðherbergi.
Smekklegir ljóskastarar eru í stofuloftum íbúða og í svefnherbergjum, innfelld loftljós á baðherbergi.
Aðgengi að lagnaleið fyrir rafmagnskapal fyrir bílhleðslu er til staðar fyrir framan hvert hús.
Sorpgeymslur verða uppsettar á bílaplani fyrir miðju húsalengjunnar.
Bílaplön eru malbikuð og lóðin við húsið frágengin og tyrfð við enda og til suðurs.
Flúðir og nágrenni eru sérlega heillandi svæði til búsetu vegna mjög góðra innviða sveitarfélagsins, þjónustu, skólamála, afþreyingar, náttúrufegurðar og veðursældar. Allar nánari upplýsingar veita
Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali. Netfang: jason@betristofan.is S: 775-1515Hörður Sverrisson, löggiltur fasteignasali. Netfang: hordur@betristofan.is. S 899-5209