Fasteignasalan Hraunhamar og Einar Örn lgf. kynna til sölu glæsilega 4ja herbergja 119 fm endaíbúð á jarðhæð með sérinngang við Blikaás 11 í Hafnarfirði. Allir uppgefnir fermetrar eru innan íbúðarinnar, þ.m.t. geymsla. Eignin skiptist í: Forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymslu og sólpall.Nánari lýsing:Forstofa flísalögð með fatahengi og fataskáp.
Hol parketlagt.
Stofan er
björt með glugga á tvo vegu og parketi á gólfi. Útgengt á stóran sólpall.
Eldhús er flísalagt með fallegri u-laga innréttingu. Flísar á milli skápa og gott borðpláss.
Hjónaherbergi rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi III með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtu. Innrétting með handlaug, spegil, klósett og handklæðaofn.
Þvottahús með málað steingólf, hillur og snúrur.
Geymsla innan íbúðar er parketlögð með góðum hillum.
Stór
timbursólpallur snýr í vestur með útgengi í garð.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Þetta er björt og falleg eign í rólegu umhverfi innst í botnlanga, leiksvæði og náttúra í kring, stutt er í skóla, leikskóla, iþróttahús, sundlaug og verslanir.Allar nánari upplýsingar veitir:
Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali
einar@hraunhamar.is / sími 888-7979Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.