Fasteignaleitin
Opið hús:30. sept. kl 16:30-17:00
Skráð 25. sept. 2026

Grenilundur 2

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
184.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
178.900.000 kr.
Fermetraverð
969.648 kr./m2
Brunabótamat
96.550.000 kr.
Byggt 1972
Pallur
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
20702532
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Virkilega fallegt og vel staðsett einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr og stóru sólhúsi við Grenilund 2 í Garðabæ.
Húsið stendur á rúmlega 1000 fm endalóð í rólegri götu. Garðurinn er gróinn og vel hirtur.
Eignin getur verið laus fljótlega!


Íbúðarhúsið skiptist í 4 herbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, gestasnyrtingu, forstofu ,þvottahús og sólhús
Bílskúr er tvöfaldur með hellulögðu plani.


Nánari lýsing:
Gengið inn í flísalagða forstofu með fatahengi. 
Við forstofu er gestasnyrting með glugga
Forstofuherbergi sem búið er að opna inn í stofu en lítið mál að loka aftur og nýta sem herbergi. 
Frá forstofu er komið í parketlagt hol og þar við er stofa, borðstofa eldhús og herbergjagangur. 
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt úr stofu í garð með hellulagðri verönd.
Eldhús er með viðarinnréttingu.Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp Gott skápapláss og borðkrókur. 
Þvottahús með flísum á gólfi og veggjum, skápar og vaskur.
Útihurð frá þvottahúsi út á bílastæði. Hægt er að komast inn á herbergisgang frá þvottahúsi.
Lítil geymsla er innaf þvottahúsi með hillum og glugga.
Herbergjagangur parketlagður. Við ganginn eru 3 svefnherbergi og baðherbergi. 
Hjónaherbergi með skápum og parket á gólfi.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, sturta og opnanlegur gluggi.
Við enda gangsins er stór og rúmgott sólhús sem er flísalagt með fallegan arinn.
Bílskúr er tvöfaldur með hurðaopnara á báðum hurðum.
Bakvið hús er hellulögð verönd með góðum geymsluskúr, í skúrnum eru hillur og rafmagn.
Bílaplan er hellulagt og það afar rúmgott. Hiti er í bílaplani og hluta gangstéttar að bílskúr.
Gólfefni íbúðarhluta eru flísar og parket.

Húsið er ekki samræmi við upphaflegar teikningar, stofa og borðstofa hafa verið stækkuð á kostnað 1 herbergis.
Upphaflega var gert ráð fyrir 5 svefnherbergjum.

Fallegt og vel skipulagt hús á þessum gróna stað, miðsvæðis í Garðabænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir , skóla og íþróttasvæði.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Birkigrund 4
Heitur pottur
Skoða eignina Birkigrund 4
Birkigrund 4
200 Kópavogur
190.8 m2
Raðhús
724
786 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Bæjargata 17
Hleðslustöð
Opið hús:27. sept. kl 14:00-15:00
móa_vefur (19).png
Skoða eignina Bæjargata 17
Bæjargata 17
210 Garðabær
207.1 m2
Raðhús
624
1004 þ.kr./m2
207.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 57
Heitur pottur
Álfhólsvegur 57
200 Kópavogur
222.4 m2
Einbýlishús
635
854 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Kvistavellir 70
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Kvistavellir 70
Kvistavellir 70
221 Hafnarfjörður
180.3 m2
Raðhús
514
720 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin