Fasteignaleitin
Opið hús:25. nóv. kl 16:15-17:00
Skráð 20. nóv. 2026

Furulundur 2 B

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
122 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
671.311 kr./m2
Fasteignamat
71.000.000 kr.
Brunabótamat
65.800.000 kr.
Mynd af Ólafur Már Þórisson
Ólafur Már Þórisson
Löggildur fasteignasali
Byggt 1974
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2146303
Landnúmer
147782
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til suðurs
Upphitun
Hitaveita/ofnakerfi eirlagnir
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Furulundur 2 B

Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á afar vinsælum stað á Brekkunni. Eignin er samtals 122 fm. auk geymsluskúrs á verönd sem snýr til vesturs. Eigninni hefur verið vel við haldið, málað reglulega og skipt um gler. Eignin er á einstaklega góðum stað þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og KA svæðið.


Neðri hæð skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús, stofu, snyrtingu og geymslu undir stiga. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi.  

Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Þvottahús við hlið forstofu er með flísar á gólfi, rennihurð, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og skolvaskur í bekkjarplötu. Góðar hirslur eru í þvottahúsi. 
Eldhús var endurnýjað 2019 og þar er parket á gólfi. Meðal annars breikkað á kostnað forstofu, innréttingar eru sérhannaðar frá HTH með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Bakaraofn í vinnuhæð, búrskápur með innstungum og tækjaskápur einnig með innstungum. Í eldhúsi er hiti í hluta af gólfi eða við norðurvegginn. 
Stofa er rúmgóð og afar björt með parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á hellulagða verönd til suðurs.
Snyrting er með vínilparketi á gólfi, upphengt klósett og vask. 
Geymsla er undir stiga.
Stigi á efri hæð er með nýlegu, slitsterku sisal teppi sem er umhverfisvænn kostur úr plöntutrefjum.
Hol efri hæðar er með parket á gólfi. Í holi eru einnig sérsmíðaðir skápar með skúffueiningum sem nýtast vel fyrir svefnherbergi hæðarinnar. 
Svefnherbergin eru fjögur, öll með parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi og úr herberginu er gengið út á svalir til suðurs þaðan sem er frábært útsýni til suðurs og vesturs að Súlum og Hlíðarfjalli.
Baðherbergi var endurnýjað í kringum 2020, þar eru flísar á gólfi og veggjum að stærstum hluta. Góð innrétting í kringum vask með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni, baðkar með sturtutækjum og handklæðaofn.

Annað: 
-Geymsluskúr á verönd er óeinangraður en leitt er í hann rafmagn
-Hiti er í hellulagðri stétt fyrir framan hús og er afar snyrtileg aðkoma að húsinu en rafmagnstenglar eru í timburverki fyrir framan hús og rafmagn leitt í beð 
-Verönd er hellulögð með timburskjólveggjum og hlið út að götu til suðurs. 
-Þak háþrýstiþvegið, grunnað og málað 2019
-Þakkantur var viðgerður 2025, skipt um það sem þurfti af fjölum, þakrennur þéttar á samskeytum og þakkantur málaður
-Húsið málað 2014 og síðan verið vel við haldið eftir þörfum, lítur mjög vel út
-Skipt um gler í öllum gluggum 2021 fyrir utan opnanleg fög og settir plastlistar
-Ný svalahurð og gluggi við hurðina úr stofu út á verönd
-Rafmagnstafla endurnýjuð fyrir um fjórum árum, auk þess sem bætt var við greinatöflu í eldhúsi
-Loft er tekið niður í eldhúsi, snyrtingu og baðherbergi til að koma fyrir innfelldri lýsingu
-Eirlagnir í ofnakerfi

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rjúpufell 46
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:22. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Rjúpufell 46
Rjúpufell 46
111 Reykjavík
132,5 m2
Fjölbýlishús
413
528 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 405
Hleðslustöð
Opið hús:22. nóv. kl 13:00-13:30
Laugaborg 405.jpg
Skoða eignina Laugaborg 405
Laugaborg 405
105 Reykjavík
105,3 m2
Fjölbýlishús
312
1034 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 213
Hleðslustöð
Opið hús:22. nóv. kl 13:00-13:30
Laugaborg 213.jpg
Skoða eignina Laugaborg 213
Laugaborg 213
105 Reykjavík
103,8 m2
Fjölbýlishús
312
1011 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (211)
Hleðslustöð
Opið hús:22. nóv. kl 13:00-13:30
406_kitchen_dning.jpg
Skoða eignina Laugaborg (211)
Laugaborg (211)
105 Reykjavík
101,2 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
101.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin