Valhöll og Sölvi Þór Sævarsson lgfs, kynna: Glæsilega bjarta, rúmgóða og vel skipulagða 4ra herbergja 145 m² íbúð á 2, hæð í vönduðu lyftuhúsi við Norðurbakka 9c í Hafnarfirði. Tvennar svalir. Gott stæði í bílageymslu. Frábær staðetning í hjarta Hafnarfjarðar í göngufæri við miðbæinn. Arkitekt hússins að Norðurbakka 7-9 er Pálmar Kristinsson.
--- ATHUGIÐ --- Ekki verða haldin opin hús á íbúðinni -- Eignin er eingöngu sýnd í einkaskoðun ---
Eignin verður sýnd áhugasömum eftir hádegi þriðjudaginn 22.09 og miðvikudaginn 23.09
Vinsamlegast bókið skoðun hjá Sölvi á netfang solvi@valholl.is eða í s 618-0064.
* Nýlegar skápahurðar fyrir skápum í forstofu og tveimur herbergjum.
* Aukalofthæð innan íbúðar og gott skipulag.
* Vönduð eldhúsinnrétting með kvartssteinplötum.
* Baðinnrétting með kvartssteinplötu.
* Búið er að endurnýja og lagfæra glugga í öllu húsinu eftir úttekt og yfirferð.
Gott skipulag og góð lofthæð er í íbúðinni sem skiptist í rúmgóða opna forstofu, stórar stofur og gott endhúsrými í björtu alrými með gluggum á báðar hliðar sem gefur gott birtuflæði í gegnum alrýmið.
Tvennar svalir við borðstofu og stofu. Stórt hjónaherbergi, tvö góð barnaherbergi rúmgott baðherbergi og þvottahús sem er staðsett á sér herbergisgangi í framhaldi af anddyri.
Eignin er í heild skráð 145 m² skv. Þjóðskrá Hms, þar af er geymsla 13,2 m².
Fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er kr. 108.700.000 kr. Byggingarár er 2015.
Allar nánari uppl. veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@valholl.is
Nánari lýsing:
Forstofa - Stór fataskápur með nýlegum rennihurðum frá 2025, vandaðar flísar á gólfi.
Alrými - Stofa, eldhús og borðstofa í sameiginlegu björtu alrými. Eldhús er glæsilegt með vandaðri innréttingu og eyju með nýlegum borðplötum úr náttúrusteini, vönduð nýleg tæki, nýlegt AEG spanhelluborð í eyju og nýleg innbyggð Miele uppþvottavél í innréttingu. Stofa, eldhús og borðstofa eru samliggjandi og ná í gegnum íbúðina með glugga í austur og vestur og er gott birtuflæði í alrýminu. Tvennar góðar svalir sem snúa í austur og vestur. Harðparket á gólfi alrýmis.
Herbergi við anddyri – Er rúmgott með fataskáp með rennihurður og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi – Með vandaðri innréttingu, borðplötu og handlaug úr náttúrusteini. Baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á veggjum og gólfi.
Þvottahús – Með innréttingu með skolvaski og góðu plássi fyrir þvottavél og þurkara í góðri vinnuhæð.
Hjónaherbergi – Stórt hjónaherbergi með nýlegum fataskáp með rennihurðum og harðparket á gólfi.
Barnaherbergi – Með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Geymsla – Rúmgóð sérgeymsla í sameign á jarðhæð.
Vönduð sameign m.a. hjóla og vagnageymsla og glæsilegur garður sem verið er að lagfæra eftir framkvæmdir.
Bílastæði í bílageymslu merkt 01- B40 fylgir eigninni.
Húsgjöld: húsgjöld eignar eru 39.630.- kr á mánuði. Hiti(%) 10.194 Húseigendatrygging(%) 7.546 Almennhúsgjöld(J) 8.316 Bílhýsi(J) 3.221 Jafnskipthúsgjöldsumra-9c(J) 4.502 Framkvæmdasjóður(%) 4.851 Tilkynningar-ogbankagjald 320.
Framkvæmdagjald eignar eru nú pr.mán: 186.446 Framkvæmdagjald eignar eru nú pr.mán: 89.281
Fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags.
Á aðalfundi 2026 var í skýrslu stjórnar upplýst,að vinna sé í gangi varðandi svalalokanir og er búið að senda umsókn um byggingarleyfið inn til Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Sjá aðalfundargerð16.04.2026 Úttekt hefur farið fram á ástandi hússins: Matsgerð,ágúst 2020 og Yfirmatsgerð júní 2024.
Nánasta umhverfi:
Frábær staðsetning í göngufæri í Miðbæ Hafnarfjarðar þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Stutt í leikskóla og skóla.
Framkvæmdir síðustu ára skv, upplýsingum frá seljanda:
- 2025/2026 Skipt út gluggum í íbúðinni og yfirborðsfrágangur yfir bílageymslu lagaður, settur nýr þakpappi á plötu yfir bílageymslu.
- 2025 Hurðum á fataskápum breytt og settar rennihurðar á fataskápa í tveimur herbergjum og forstofu.
- 2023 Allar innihurðir voru sprautulakkaðar af fagmönnum.
- 2020/2021 Eldhúsi var breytt og það endurnýjað að mestu leyti, eyja var stækkuð. Ný blöndunartæki, spanhelluborð,vaskur og uppþvottavél.
Skipt var um og settar voru nýjar borðplötur á eldhúsinnréttingu og eyju, Calacatta Mont Blanc náttúrusteinn.
- 2020 Öll lýsing í íbúð endurnýjuð með dimmerum.
- 2020 Nýir skápar að mestu leyti. Íbúðin öll spörsluð og máluð af fagmönnum.
Arkitekt hússins er búinn að samþykkja og teikna svalalokanir. Samþykki fyrir þeim er í vinnslu.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@valholl.is
– eða skrifstofa / s.588-4477
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu sbr verðskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.