Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Dalsbraut 34, íbúð 202, 260 Reykjanesbær Vönduð og vel skipulögð tveggja herbergja endaíbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi í Dalshverfi. Íbúðin er björt og falleg með opnu alrými. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og aðra þjónustu.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 64.5 m². Eign merkt 02-02, fastanúmer 251-1940 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar: Komið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskáp. Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými. Eldhúsinnrétting er grá með kvartsborðplötu. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni. Úr stofu er útgengt á 7,2 m² suðvestursvalir. Eitt svefnherbergi er í íbúðinni með fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er sturta, upphengt salerni, innrétting með kvartsborðplötu og nýlegur handklæðaofn. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi. Vínylparket er á meginrýmum íbúðarinnar en flísar á baðherbergi.
Byggingarlýsing og lóð: Dalsbraut 34 er steinsteypt fjölbýlishús með 15 íbúðum. Útveggir eru einangraðir að utan með steinull og klæddir álklæðningu. Gluggar eru úr timbri og áli með tvöföldu K-gleri og þak hússins er flatt. Á lóð eru 24 bílastæði í óskiptri sameign, þar af tvö ætluð hreyfihömluðum. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Fyrir liggur yfirmatsgerð, dags. 12. maí 2026, vegna fjölbýlishússins að Dalsbraut 34. Í matsgerðinni eru gerðar athugasemdir við útidyrahurðir íbúða, frágang baðherbergja tveggja herbergja íbúða og sameiginlegan svalagang á annarri hæð. Íbúð 202 er tilgreind meðal þeirra íbúða sem umfjöllun um baðherbergi tekur til. Yfirmatsgerðin er meðal sölugagna og eru væntanlegir kaupendur hvattir til að kynna sér efni hennar.
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Dalsbraut 34, íbúð 202, 260 Reykjanesbær Vönduð og vel skipulögð tveggja herbergja endaíbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi í Dalshverfi. Íbúðin er björt og falleg með opnu alrými. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og aðra þjónustu.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 64.5 m². Eign merkt 02-02, fastanúmer 251-1940 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar: Komið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskáp. Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými. Eldhúsinnrétting er grá með kvartsborðplötu. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni. Úr stofu er útgengt á 7,2 m² suðvestursvalir. Eitt svefnherbergi er í íbúðinni með fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er sturta, upphengt salerni, innrétting með kvartsborðplötu og nýlegur handklæðaofn. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi. Vínylparket er á meginrýmum íbúðarinnar en flísar á baðherbergi.
Byggingarlýsing og lóð: Dalsbraut 34 er steinsteypt fjölbýlishús með 15 íbúðum. Útveggir eru einangraðir að utan með steinull og klæddir álklæðningu. Gluggar eru úr timbri og áli með tvöföldu K-gleri og þak hússins er flatt. Á lóð eru 24 bílastæði í óskiptri sameign, þar af tvö ætluð hreyfihömluðum. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.