Fasteignaleitin
Skráð 30. okt. 2026

Kumlamýri 13

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
204.2 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
187.700.000 kr.
Fermetraverð
919.197 kr./m2
Byggt 2026
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
25218821
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Tveir inngangar

Valhöll og Þóra Birgisdóttir kynna einstaklega glæsilegt nýtt parhús á útsýnisstað til sölu. Húsið er fullbúið og tilbúið til afhendingar.
Kumlamýri 13 er 204,2 fm. að stærð, þar af er innbyggður bílskúrin 22,4 fm og íbúðarhúsið sjálft 181,1 fm. skv. fasteignaskrá HMS.
Nánari lýsing;
Á neðri hæð (102 fm), er rúmgóð forstofa með góðum fataskápum. Þvottahús er flísalagt með innréttingu og opnanlegum glugga auk loftræstingar. Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu, handklæðaofni og lotræstingu. Eldhúsið er vel búið innréttingu með góðu geymslu- og vinnurými, steinplötum á bekkjum og vönduðum eldhústækjum frá Siemens, þar er um að ræða Span helluborð með innfelldum háf, fjölkerfa bakaraofn og örbylgjuofn, innbyggða uppþvottavél og ísskáp. Stór og vegleg eyja með góðri aðstöðu til að sitja við snýr inn í stofuna og tryggir góð tengsl eldhúss við alrýmið. Stofurnar eru 2-3, þ.e.a.s. borðstofa í framhaldi af elshúsi með gólfsíðum gluggum og hurð út á suður verönd, setustofa með uppteknum loftum og gluggum til suðurs og hurð út á timburverönd. Þriðja stofan hentar vel sem sjónvarpsstofa eða auka herbergi en þannig fást 4 rúmgóð svefnherbergi í húsinu. Steinsteyptur stigi milli hæða og glerhandrið setja svip á alrýmið.
Á efri hæðinni (79,8 fm, gólfflötur stærri) eru  glæsilegt hol fyrir framan herbergin með uppteknum glugga með útsýni yfir til Bessastaða. Á hæðinni eru 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi er með hálf-opið fataherbergi með fataskápum og inn af því er rúmgott baðherbergi með "walk-in" sturtu með sturtugleri, upphengdu salerni, innréttingu og handklæðaofni. Frá hjónaherberginu er gengið út á suð-austur svalir með frábæru útsýni. Barnaherbergin eru bæði mjög rúmgóð (tæplega 14 fm. hvort) með fataskápum.
Baðherbergi er rúmgott, sturta með glervegg, upphengt salerni, handklæðaofn, innrétting, opnanlegur gluggi loftræsting.
Bílskúr/geymsla: Innangengt frá forstofu, gólf er vélstlípað, rafdryfin bílskúrshurð. Húsið er sérlega vandað bæði í hönnun og efnisvali. Innréttingar eru sérsmíðaðar á Íslandi. Gólfhiti er í öllum rýmum, stýrt með Danfoss hitakerfi. Lóð og hönnun hússins snýr sérlega vel gagnvart sól og birtu, verandir út frá stofum bæði í suð-austur og norðvestur auk svala út frá hjónasvítu til suðurs.  Lagnakerfi gerir ráð fyrir bæði heitum og köldpum potti á verönd. Sorptunnuskýli forsteypt með hurðum. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslulögn.
Frágangur og efnisval; Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að untanverðu og klætt sléttri álklæðingu, gluggar eru álklæddir/timburgluggar frá Rationel (Húsasmiðjan). Þak er fulleinangrað og báruálsklætt. Lóðin er fullfrágengin, þökulögð með viðarklæddum veröndum, hellulögð bílaplön og aðkoma hússins er með snjóbræðslu. Sorptunnuskýli (forsteypt) rúma 3 tunnur. Húsið er upphitað með gólfhitakerfið er með hitastýrðum lokum og Danfoss hitastýrikerfis. Innveggir fyrir utan steypta veggi eru hefðbundnir gipsplötuveggir. Veggir og loft innan húsa eru spartlaðir og fullmálaðir. Hluti lofta (þar sem mikil lofthæð er, er með hljóðvistar loftadúk. Innréttingar í eldhúsi og baðherbergjum ásamt fataskápum eru íslensk framleiðsla. 
Gólfefni: Húsið er án gólfefna fyrir utan gólf á baðherbergjum, anddyri og þvottahúsi sem eru flísalögð. Eldhústækin eru vönduð tæki frá Siemens, spanhelluborði, blástursofni, örbylgjuofni, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Háfur eru innbyggður í helluborði í eyju. 
Byggingaraðili: Fimir ehf., með áratuga reynslu í byggingu íslenskra húsa, arkitekt: Rúnar Gunnarsson FAÍ, raflagna- og lýsingarhönnun LX teiknistofa ehf. - Helgi Eiríksson, burðarvirki og lagnir Magnús Gylfason verkfræðingur hjá Tæknivangur ehf. 
Kumlamýri er í nýju skemmtilegu hverfi á Álftanesi þar hönnun gefur gott rými í kringum húsin sjálf og götunni er skipt upp í botnlanga með fjórum parhúsum sem hvert um sig hefur góða lóð og töluvert rými er umhverfis lóðirnar sjálfar, í miðjunni er skemmtilegt íverusvæði. 
Deiliskupulag miðar að því að svæðið og hönnun húsa sem þar standa viðhaldi því búsetulandslagi sem einkennt hefur Álftanes, óreglulegar þyrpingar sem umlykja sameiginleg aðkomusvæði eru einkennandi fyrir það. Hverfið liggur nálægt/þétt grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og golfvöll. Þá er fallegt útivistarsvæði allt um kring og mikið útsýni og víðsýni til allra átta.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valhöll fasteignasala ehf.
http://valholl.is

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautargata 6
Bílastæði
Skoða eignina Lautargata 6
Lautargata 6
210 Garðabær
134,3 m2
Fjölbýlishús
312
961 þ.kr./m2
129.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
136,4 m2
Fjölbýlishús
322
1099 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Skipalón 5
Bílskúr
Skoða eignina Skipalón 5
Skipalón 5
220 Hafnarfjörður
112,9 m2
Fjölbýlishús
413
775 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Bílastæði
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
85,9 m2
Fjölbýlishús
312
1047 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin