Fasteignaleitin
Skráð 7. nóv. 2025

Hverfisgata 49

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
64.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
849.845 kr./m2
Fasteignamat
58.750.000 kr.
Brunabótamat
29.650.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2003311
Landnúmer
101073
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Raflagnir
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Gluggar / Gler
Komin tími á glugga
Þak
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð við Hverfisgötu 49, 101 Reykjavík. Um er að ræða vel staðsetta eign í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi á vinsælum stað í miðborg Reykjavíkur. Eignin telur eitt svefnherbergi, anddyri, hol, eldhús, stofu/borðstofu og baðherbergi. Sér geymsla sem tilheyrir eigninni er staðsett á sömu hæð og í kjallara er sameiginlegt þvottahús ásamt vagna- og hjólageymslu. Húsið byggt 1949 og teiknað af Sigvalda Thordarsyni arkitekt. Frábær fyrstu kaup! Allar nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Bjarna Lgf., í s. 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is  *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***    

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 64,6 m² þar af er íbúð skráð 61,1 m² og sér geymsla 3 m² staðsett á sömu hæð. 

Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur í grennd við alla helsta þjónusta og verslanir ásamt fjölbreyttri flóru kaffi- og veitingahúsa. Leik-, grunn og menntaskóli í göngufjarlægð ásamt Sundhöll Reykjavíkur og fallegum göngu- og hjólaleiðum við sjávarsíðuna. Mikil uppbygging hefur verið á svæðinu og er Vatnsstígur frá Hverfisgötu upp á Laugaveg orðin göngugata með skemmtilegu torgi. Sjarmerandi eign í hjarta borgarinnar sem vert er að skoða. 


Lýsing eignar:
Komið inn í opið anddyri og hol með góðum fataskáp og parket á gólfi. Hol tengir saman önnur rými íbúðar. Á hægri hönd er eldhús og rúmgott svefnherbergi. Á vinstri hönd er stór og rúmgóð stofa og borðstofa með stórum gluggum sem snúa í átt að Hverfisgötu og parket á gólfi. Inn af holi er flísalagt baðherbergi með sturtuklefa. Sér geymsla sem tilheyrir eigninni er staðsett á sömu hæð við hlið íbúðar. 

Nánari lýsing eignar:
Anddyri/hol með parket á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús er opið inn af holi með parket á gólfi, hvítri innréttingu og dökkri borðplötu. Tvöfaldur ísskápur ásamt uppþvottavél og frístandandi skáp fylgir eigninni. 
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi, góðum glugga og fataskáp með speglahurðum. 
Stofan er björt og rúmgóð og rúmar vel bæði borðstofu og setustofu, með góðum gluggum og parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa, salerni, handlaug, spegli á vegg ásamt hillum. Flísar á gólfi og á veggi að hluta. 
Sérgeymsla sem tilheyrir eign er staðsett á sömu hæð við hlið íbúðar.  
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara hússins ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Garður/lóð er sameiginlegur, snyrtileg aðkoma er að húsinu bæði fyrir framan og aftan hús en gengið er inn í húsið frá Vatnsstíg.

Framkvæmdir og viðhald undanfarin ár að sögn seljanda:
2012 - Múrviðgerðir á ytra byrði hússins.
2013 - Dyrasími var endurnýjaður.
2013 - Húsið málað að utan og skipt um gluggakarma.
2014-2016 - Ofnalagnir endurnýjaðar með utanáliggjandi lögnum.
2017 - Skipt um skólplagnir úti og í grunni, frárennslislagnir inni voru fóðraðar.
2018 - Stigagangur í sameign tekinn í gegn, flísalagður og málaður.
2019 - Þak nýlega endurnýjað að hluta skv. fyrri eiganda.
2021 - Skipt var um teppi á stigagang í sameign
Nýlegar raflagnir í íbúð og nýleg rafmagnstafla í sameign

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMAT

Nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Bjarnason
- Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532adalsteinn@fstorg.is
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is


KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/08/201930.550.000 kr.34.200.000 kr.64.6 m2529.411 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lundarbrekka 16
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Skoða eignina Lundarbrekka 16
Lundarbrekka 16
200 Kópavogur
107.6 m2
Fjölbýlishús
514
716 þ.kr./m2
77.000.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 2
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 12:00-12:30
Skoða eignina Garðatorg 2
Garðatorg 2
210 Garðabær
143.3 m2
Fjölbýlishús
322
1011 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 19 (701) ÞAKÍbúð
221 Hafnarfjörður
135 m2
Fjölbýlishús
322
962 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 19 (701) ÞAKÍbúð
221 Hafnarfjörður
135 m2
Fjölbýlishús
322
962 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin