Fasteignaleitin
Skráð 19. okt. 2026

Tómasarhagi 25

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
167 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
140.000.000 kr.
Fermetraverð
838.323 kr./m2
Fasteignamat
128.500.000 kr.
Brunabótamat
93.200.000 kr.
Mynd af Óskar H. Bjarnasen
Óskar H. Bjarnasen
Löggiltur fasteignasali
Húsið er eftir

Íslenskur módernismi og funkis.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1958
Jarðhæð af 3
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2028714
Landnúmer
106571
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Óþekkt/upprunalegt
Raflagnir
Upprunarlegt/nýleg aðalrafmagnstafla
Frárennslislagnir
Endurbætt að hluta
Gluggar / Gler
Eldri gluggar, komin tími á viðhald
Þak
Endurbætt að hluta 2014
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stórar suður svalir með útsýni
Lóð
36,52
Upphitun
Ofnakerfi/upprunalegir ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Farið var í endurbætur á skólplögnum að stærstum hluta árið 2023. Myndataka frárennslislagna 25.9.2026 leiddi í ljós að eldri frárennslislögn undir kjallaraíbúð, sem frárennsli frá eldhúsi kjallara og þakniðurföllum rennur í og var ekki endurnýjuð 2023, er stífluð og líklega fallin saman. Eigendur eru sammála um að ráðast þurfi í viðgerð, sjá nánar yfiflýsingu húsfélags dags. 18.10.2026 ásamt fylgiskjali til nánari skýringa. Um er að ræða endurbætur á þeim hluta lagna sem ekki var farið í 2023, þ.e. að eldhús í kjallara verði tengt við frárennslilslögnina frá 2023. Þá hefur verið rætt um að lagt verði dren meðfram húsinu með tengingu við þakrennu og útiniðurfalla við vatnslásbrunn. Tilboð í heldarframkvæmdina liggur fyrir sem hljóða upp á 12.871.200 kr. með vsk sem gerir um 4,7 mkr. fyrir íbúð 101. Eigendur eru að skoða önnur tilboð og hvort unnt sé að skipta verkinu í tvennt, þ.e. byrja á að tengja lagnir vegna eldhúsvasks kjallara við nýja kerfið og nýta hugsanlega eldri lagnir fyrir regnvatn til bráðabirgða þar til ráðist verður í dren. Ekki liggur fyrir hvort það sé unnt og annað verðtilboð liggur ekki fyrir. Framkvæmdin er því ósamþykkt og endanleg fjárhæð óviss. Stefnt er að því að lagnatenging vegna eldhúss fari fram á næstu mánuðum, háð tilboðum; dren er ótímasett. Húsfélagið hyggst ekki taka lán; hver eigandi fjármagnar sinn hlut.
Valhöll kynnir: Fallega 167 fm sérhæð með bílskúr við Tómasarhaga 25. Sér inngangur. Stórar suðursvalir meðfram húsinu og gengið er af þeim niður í gróinn suður garð en helmingur garðsins fylgir eigninni sem og verönd í garði. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni m.a. sjávarsýn. Þvottahús innan íbúðar. Þrjú svefnherbergi eru innan íbúðar auk herbergis í kjallara (skráð sem geymsla) Arkitekt hússins er Sigvaldi Thordarson.

Bókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögmanni í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is


ÍBÚÐIN VERÐUR SÝND Laugardaginn 24. OKTÓBER. VINSAMLEGA BÓKIÐ SKOÐUN Í GEGNUM NETFANGIÐ oskar@valholl.is

Samkvæmt Fasteignayfirliti HMS er íbúðin skráð 131,9 fm og bílskúrinn 35,1 fm. alls 167 fm.

Nánari lýsing:
Gengið er inn af tröppum um sér inngang.
Anddyri: Gengið er inn í anddyri með fatahengi. Úr andyrri er gengið niður í sameign í kjallara, eldhús og hol/borðstofuhol.
Borðstofuhol: Komið er inn í parketlagt hol með skápum og stórum suðurgluggum. Í holinu er borðstofa og tengir rýmið saman stofuna, svefnherbergisgang og eldhúsið. 
Stofa: Er björt og rúmgóð með gluggum á þrjá vegu. Útgengt er út á stórar suðursvalirnar meðfram hlið hússins. Glæsilegt útsýni.
Af svölunum er svo gengið út í stóran og gróinn suðurgarðinn en sá helmingur garðsins, þaðan sem gengið er niður í hann, tilheyrir eigninni (norð-vestur helmingu) ásamt verönd í garði. Þaðan er einnig hægt að ganga inn í bílskúr að aftan.
Eldhúsið: Er rúmgott með gluggum á tvo vegu. U-laga með upprunalegri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Inn af eldhúsi er einnig borðkrókur.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi með glugga og útgengi út á suður svalir og út í garð.
Gangur: á gangi í svefnálmu, er gengið inn í herbergin þrjú, baðherbergi og tvær geymslur. Önnur geymslan er teiknuð sem gestasalerni.
Herbergi I: rúmgott dúkalagt herbergi með skápum. Svalir til austurs eru útaf herberginu.
Herbergi II: dúkalagt herbergi með skápum.
Herbergi III: dúkalagt herbergi með skápum.
Baðherbergi: er með dúk á gólfi en flísum á veggjum. Baðkar með sturtu. Gluggi er á baðherbergi.

Bílskúr: 35,1 fm bílskúr með hita, vatni og rafmagni og gluggum á suður enda. Steypt gólf. Sjálfvirkur hurðaopnari. Bílskúrinn var byggður 1993, sbr. samþykktar teikningar.
Kjallari: 
Kjallaraherbergi: Í kjallara er rúmgott herbergi 10 fm (skráð sem geymsla) með glugga sem notað hefur verið sem svefnherbergi/gestaherbergi.
Tvær sérgeymslur er einnig í kjallara, önnur 2,2 fm með hillum en hin er undir stiga er skáð 1 fm. en er með stærri gólfflöt.
Í sameign er einnig sameiginleg hitakompa ásamt sameiginlegri útigeymslu undir tröppum sem þessi eign á til helminga á móti íbúð efstu hæðar hússins.

Framkvæmdir að sögn seljanda:
-Byggt var ofan á húsið árið 2014 og er því þakið á þeim hluta hússins frá frá árinu 2014.
-Skipt var um frárennslislagnir árið 2023 að stærstum hluta. Ný aðalfrárennslislögn frá kyndiklefa út í götu með nýjum brunni; frárennsli frá eldhúsum 1. og 2. hæðar, bílskúrum og baðherbergjum allra hæða tengt inn á hana. Eldri lögn undir kjallaraíbúð látin standa fyrir eldhús kjallara og þakniðurföll sem liggur fyrir að endurbæta á næstu misserum.
-Sumar 2024, Múrviðgerðir á útveggjum, inndæling í sprungur, slípun og fultun.
-Sumar 2025 Ný aðalrafmagnstafla. 
-2025 - 2026 Múrviðgerðir og málun: svalakantur, þakskyggni, sprunguviðgerðir á framhlið, slípun og filtun á steinveggjum og svalagölfi, gluggar, silan og málning.

Ekkert formlegt húsfélag er starfandi í húsinu, enginn hússjóður eða framkvæmdasjóður og engin húsgjöld eru innheimt. Sameiginlegur kostnaður er greiddur beint af eigendum eftir hlutfallstölum samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu (íbúð 0101 á 36,52% í húsinu) þegar til hans er stofnað. Allar framkvæmdir á sameign 2023–2026 eru að fullu uppgerðar milli eigenda og engar skuldir eru útistandandi.

Frábær staðsetning í vesturbænum með fallegu útsýni út á haf. Í næsta nágrenni eru leikskóli, skóli, sundlaug, kaffihús, verslanir og helsta þjónusta. Örstutt í fallegt útivistarsvæði og gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1958
35.1 m2
Fasteignanúmer
2028714
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.400.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraungata 7 (301)
Bílastæði
Hraungata 7 (301)
210 Garðabær
158,6 m2
Fjölbýlishús
524
1071 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Flétturimi 8
Efsta hæð
Opið hús:22. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Flétturimi 8
Flétturimi 8
112 Reykjavík
155,9 m2
Fjölbýlishús
413
500 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Hjallabraut 45A
220 Hafnarfjörður
159,7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45
Skoða eignina Hjallabraut 45
Hjallabraut 45
220 Hafnarfjörður
157,5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin