Eignin er ***SELD*** með hefðbundnum fyrirvörum
Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega glæsilegt og mikið endurnýjað 195 fm. einbýlishús á 3 hæðum. Búið er að stækka húsið með því að byggja nýtt 4 fm. anddyri sem ekki er inn í heildafermetrafjölda. Falleg gróin lóð með heitum potti og 15 fm. garðhýsi. Einstaklega vel staðsett hús í hjarta Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, grunn- og leikskóla og íþróttamiðstöð og sundlaug.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, 2 stofur / borðstofur, gangur á miðhæð og í risi, 4 svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, geymslu og 15 fm. garðhús.
Nánari lýsing eignar:
Miðhæð:
Anddyri: Búið er að stækka anndyri með viðbyggingu (bíslag). Komið er inn í flísalagða forstofu með innfeldum hvítum fataskápum, hiti í gólfi í viðbyggingu.
Gangur: Úr forstofu er gengið inn í parketlagðan gang.
Stofur / borðstofur: Tvær rúmgóðar stofur, parket á gólfi.
Eldhús: Með fallegri innréttingu frá Fagus, bakaraofn, háfur, spanhelluborð, borðplata úr granít, flísar milli skápa, borðkrókur með glervegg milli stofu og eldhúss, flísar á gólfi.
Gestasnyrting: Með fallegri grárri innréttingu, granít borðplata, sturta, upphengt salerni með granítplötu á klósettkassa, gólfhiti, flísalagt í hólf og gólf.
Ris:
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með innfeldum hvítum fataskápum, gönguhurð út á suður svalir, granít sólbekkir í gluggum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi með hvítum fataskáp, granít sólbekkur í gluggum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi, granít sólbekkur í gluggum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með fallegri hvítri innréttingu, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, Grohe blöndunartæki, bluetooth vifta, gólfhiti, flísalagt í hólf og gólf. Endurnýjað að mestu.
Gangur: Parket á gólfi.
Geymsla: Ofan súðar er geymsluloft.
Kjallari:
Geymsla: Rúmgott geymslurými, hvít innrétting með skolvask, hillur, gönguhurð út á baklóð, epoxy lakk á gólfi.
Þvottahús: Með hvítri innréttingu, skolvaskur, ofn, pottastýring, flísar á gólfi.
Lóð: Lóðin er einstaklega glæsileg. Framan við húsið gróinn lóð með hellulagðri stétt, framan við anddyri er hellulagður pallur með skjólvegg. Á baklóð nýlega hellulögð verönd, heitur pottur með sólpall og skjólveggjum, led lýsing fyrir ofan pottinn, malarlögð innkeyrsla, 15 fm. garðhýsi með 20 fm sólpall, rafmagn og ofn eru í garðhýsinu og búið að tengja fyrir rafhleðslustöð (rafhleðslustöð fylgir ekki með).
Búið er að lagfæra og endurnýja eignina mikið að innan sem utan undanfarin ár m.a:
Ytra byrði:
* Nýtt anddyri með steyptum veggjum og sérsmíðuðum gluggum, nýjar rennur.
* Hús hefur verið filterað að utan og gert við austurgafl sem er ekki heilfilteraður.
* Hús málað að utan og gluggar lakkaðir.
* Gler endurnýjað í flestum gluggum.
* Nýr þakkantur með lofttúðum á milli.
Bakgarðurinn:
* Skipt um klóakrör og allt sett í plast, nýr brunnur.
* Rakadúkur settur baka til meðfram húsinu.
* Ný hellulögð verönd á baklóð (gert af fagmanni), skipt um jarðveg undir hellum með fram húsinu, nýtt niðurfall úti.
* Nýr heitur pottur frá Trefjum með góðum stýringum, LED lýsingu fyrir ofan pott og pallur smíðaður í kringum pott.
* Garðveggir reistir sem skilja að göngustíg og baklóð.
* Nýtt 15 fermetra garðhús og sólpallur smíðaður í kring, rafmagn og rafmagnsofn í húsinu.
* Búið að græja tengingar fyrir hleðslustöð (hleðslustöð fylgir ekki með).
* Skipt hefur verið um jarðveg í innkeyrslu.
* Garður tekinn í gegn síðastliði sumar af skrúðgarðyrkjufræðing, ný tré og runnar keyptir í garðinn.
* Nýtt steypt svalargólf.
Anddyri: Hiti í gólfi, anddyri flísalagt, skápar lakkaðir hvítir, nýtt gler og nýjir slökkvarar.
Stofa / gangur: Stafaparket slípað upp og lakkað af fagmönnum (Ingo.ehf), nýjir slökkvarar í stofu, sólbekkir lakkaðir, skipt um hurð á gangi.
Eldhús: Ný LED ljós í eldhúsinnréttingu, granítborðplötur, innfellt spanhelluborð, rúður filmaðar.
Gestasnyrting: Gólfflísar teknar upp og steypt nýtt gólf, niðurfall endurnýjað og hiti settur í gólf, gólfflísar endurnýjaðar, ný Grohe sturta og blöndunartæki, granít borðplata á vaskborði og klósettkassa, nýbúið er að filma gler í sturtu, ný innrétting.
Svefnherbergi / gangur: Nýtt parket, ný hurð og gluggar í hjónaherbergi, nýjar hurðar á allri efri hæð (Reykt eik), granít sólbekkir í svefnherbergjum.
Baðherbergi: Endurnýjað að mestu þ.e. endurnýjaðar flísar á gólfi og veggjum, nýjar plast vatnslagnir, ný sturta, nýtt salerni, ný innrétting og vaskur
Kjallari / þvottahús: Stigi og gólf í kjallara nýlega lakkað með epoxi lakki (af fagmönnum), ný innrétting og hillur í þvottahúsi, lagnagrind endurnýjuð að mestu.
Hér er um að ræða einstaklega fallegt og mikið endurnýjað eldra einbýlishús miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, grunn- og leikskóla og íþróttamiðstöð og sundlaug.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs í síma 896-6020eða í tölvupóstfanginu hallgrimur@trausti.is, eða Kristján Baldursson lgfs í tölvupóstfanginu kristjan@trausti.is.
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Slagorð Sveitarfélagsins Ölfus er "Hamingjan er hér".