Fasteignaleitin
Skráð 17. okt. 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
141 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
76.100.000 kr.
Fermetraverð
539.716 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
3929920
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
40 fm til suðurs
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝBYGGING Á LAS COLINAS* *GLÆSILEG RÚMGÓÐ ÍBÚÐ TIL SUÐURS* *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU, LYFTA OG SUNDLAUGARGARÐUR*

Sérlega glæsileg og vel hönnuð ný íbúð á Las Colinas golfsvæðinu með útsýni og suðursvölum. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóð íbúð, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu og góðri tengingu við stórar suðursvalir. Sér bílastæði i bílakjallara ásamt sér geymslu. Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu.

Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is Sími 00354 8932495


Lýsing:
Rúmgóð og glæsileg íbúð, 40 fm svalir til suðurs út frá stofu, samtals er um að ræða 141fm. sérafnotarými. Tvö svefnherbergi með góðu skápaplássi, og tvö baðherbergi með sturtu og gólfhita. Stór stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með góðri tengingu við stórar svalir. Glæsilegur fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu. Líkamsrækt. Sér bílastæði í bílakjallara fylgja ásamt sér geymslu. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina. Íbúðin er tilbúin til afhendingar.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir og auk þess er gólfhiti á baðherbergjum.
Rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél fylgja.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegur PGA golfvöllur. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 525.000 evrur + kostn. (76.100.000ISK) miðað við 1Evra=145ISK.

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign, suðursvalir
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
3929920

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Flamenca Village
SPÁNAREIGNIR - Flamenca Village
Spánn - Costa Blanca
161 m2
Fjölbýlishús
322
449 þ.kr./m2
72.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf
SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf
Spánn - Costa Blanca
162 m2
Einbýlishús
534
446 þ.kr./m2
72.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
115 m2
Einbýlishús
423
630 þ.kr./m2
72.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Flamenca Village
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Flamenca Village
Spánn - Costa Blanca
119 m2
Fjölbýlishús
423
635 þ.kr./m2
75.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin