Pétur Ásgeirsson og Magnús Már Lúðvíksson Löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna: Einkar fallega og bjarta 83,7 fm 3 herbergja enda íbúð á 2 hæð með suður svalir í góðu fjölbýli við Eskivelli 11 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist í forstofu/gang, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu sem er innan íbúðar. Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér Lýsing eignar:Forstofa: Er með góðum skáp og flísum á gólfi. Gengið er inn í forstofuna úr snyrtilegri sameign örstutt frá lyftunni.
Stofa og eldhús: Eru í björtu alrými, með fallegu útsýni á tvo vegu. Gengið er út á suður svalir og hægt er að setja svalalokun.
Eldhúsið: Er með fallegri innréttingu með miklu skápa plássi, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp með frysti.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, parket á gólfi og stór fataskápur.
Barnaherbergi: Er parketlagt og með fataskáp.
Baðherbergi: Er flísalagt á gólfi og veggjum. Falleg innrétting, sturta, upphengt salerni og gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Er innan íbúðar og er gengið í hana úr forstofunni.
Búið er að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla á lóð hússins sem allir íbúar geta nýtt sér. Í sameign er hjóla og vagnageymsla.
Húsið er á sex hæðum með 39 íbúðum. Húsið er staðsteypt, álklæðning að utan, gluggar eru úr áli og tré.
Björt og falleg íbúð á frábærum stað í þessu góða hverfi. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, sundlaug, verslanir og almenna þjónustu.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is og Magnús Már Lúðvíksson Löggiltur fasteignasali Sími: 699-2010 Email: Maggi@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.