Fasteignaleitin
Opið hús:16. mars kl 16:30-17:00
Skráð 12. mars 2026

Skálagerði 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
60.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
945.183 kr./m2
Fasteignamat
52.300.000 kr.
Brunabótamat
29.450.000 kr.
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2033925
Landnúmer
107761
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta/upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Hitaveita
RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is  / 774-1477 ) kynna: 
Vel skipulögð, rúmgóð og björt 2ja herbergja íbúð með palli í góðu fjölbýlishúsi við Skálagerði 7 í 108 Reykjavík.

** SMELLIÐ HÉR fyrir ítarlegri upplýsingar og/eða bóka tíma í skoðun ** 
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **


Eignin er samtals 60,2 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands og samanstendur af andyri, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, sameiginlegu þvottahúsi, vagna- og hjólageymslu og fallega grónum garði. 

** SMELLTU HÉR og skoðaðu ÍBÚÐINA í 3-D, þrívíðu umhverfi.**

Nánari lýsing: 
Andyri: Gengið inn í rúmgott andyri með fataskáp og flísum á gólfi. 
Eldhús: Skemmtilegt eldhús með hvítri og snyrtilegri eldhúsinnréttingu, helluborð, ofn í vinnuhæð, háfur, vaskur, blöndunartæki og tengi fyrir uppþvottavél. Ljósar flísar á gólfi.
Stofa: Björt með aðgengi úr á pall. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Smekklega innréttað baðherbergi með salerni, handlaug með innréttingu, speglaskápur og baðkari með sturtu. 
Pallur: Gengið út úr stofu út á skjólgóðan og sólríkan pall með skjólvegg allt um kring. 
Geymsla:  Er 4,2 m² í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er í sameign þar sem hver er með sína vél. Einnig er þar sameiginleg hjóla og vagna geymsla.
Lóð: Stór sameiginleg grasivaxin lóð. 
Gólfefni: Gegnheilt eldra parket og flísar. 

Framkvæmdir á húsi síðustu ár:
* Ruslaskýli endurnýjað 2025
* Stigagangur teppalagður og málaður 2024
* Múrviðgerð og málað að utan 2021-2022
* Skipt um glugga/gler eftir þörfum 2019 
* Þak og húsgafla yfirfarin 2018
* Drenað í kringum hús 2013 eða fyrr. 
Framkvæmdir innan íbúðar síðust ár:
* Gluggakista í svefnherbergi gerð upp - 2026
* Pallur pússaður upp - 2021
* Skipt um glugga í eldhúsi og svefnherbergi og gler í stofu - 2019
* Viðbót við eldhúsinnréttingu - 2014
* Pallur smíðaður, hurðir endurnýjaðar ásamt eldhúsinnréttingu ca. 2012 af fyrri eiganda. 

Virkilega skemmtileg, vel skipulögð eign mjög miðsvæðis í borginni með góða tengingu við almenningssamgöngur og stofnbrautir.
Stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu sem Skeifan og nágrenni hafa upp á að bjóða. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2016 og hef á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir mér skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Ég legg ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið mitt er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Ég legg mig fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar. Ekki hika við að hafa samband fyrir frítt og skuldbindingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref.  S. 774-1477 / herabjork@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/10/201315.250.000 kr.20.400.000 kr.60.2 m2338.870 kr.
18/07/201214.350.000 kr.15.800.000 kr.60.2 m2262.458 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35 (207)
IMG_9160.jpg
Hringhamar 35 (207)
221 Hafnarfjörður
98.5 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24B (213)
IMG_2247.jpg
Borgartún 24B (213)
105 Reykjavík
79.8 m2
Fjölbýlishús
311
1001 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 25 (403)
IMG_9143.JPG
Hringhamar 25 (403)
221 Hafnarfjörður
84.6 m2
Fjölbýlishús
312
814 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 25 (104)
IMG_9143.JPG
Hringhamar 25 (104)
221 Hafnarfjörður
84.3 m2
Fjölbýlishús
312
794 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin