Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna: Falleg 188,4 fm sérhæð í þríbýlishúsi ásamt rúmum bílskúr sem auðvelt er að breyta í íbúð á þessum eftirsótta og fallega stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð að innan sem utan ásamt því sem að upprunalegt skipulag hefur verið betrumbætt. Garðurinn er einstaklega fallegur og sameiginlegur, auk þess sem stutt er í leiksvæði á milli Tómasarhaga og Lynghaga. Skv. fasteignaskrá mælist hæðin 134,5 fm með geymslu og bílskúrinn til viðbótar 53,9 fm en búið er að koma fyrir litlu baðherbergi með klósetti og vaski. Lítið mál að breyta bílskúr í aukaíbúð.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum sbr. eftirfarandi samantekt: 2025: Eldhús uppfært: Ný eikar-borðplata, flísar, opnar hillur með LED-lýsingu og helluborð með gufugleypi. 2025: Rafmagnstafla í íbúð yfirfarin og endurnýjuð. 2025: Útitröppur steypuviðgerðar og suðurgluggar á hæð yfirfarnir. 2024: Skólplagnir endurnýjaðar að fullu frá bílskúrum. 2011-2012: Dren endurnýjað að framan, skipt um þakrennur og niðurföll, og frárennsli fóðrað. 2000: Rishæð byggð og þak endurnýjað.
Nánari lýsing: Miðhæð Gengið er upp tröppur að sérinngangi á miðhæð. Anddyri: Rúmgott með terrazzo-flísum. Á hægri hönd er svefnherbergi með innfelldum fataskáp og beykiparketi. Eldhús og borðstofa: Úr anddyri er komið inn í opið og bjart rými með terrazzo-flísum. Eldhúsið var endurnýjað 2025 með fallegum opnum hillum og vandaðri eikar-borðplötu. Skáli: Framan við eldhúsið er bjartur skáli sem í dag er nýttur sem borðstofa/setstofa og tengir eldhúsið við aðra hluta hæðarinnar. Stofa: Björt og falleg með frönskum gluggum sem vísa út í garð. Úr stofu er útgengt á suðursvalir með stiga niður í garðinn. Svefnherbergi: Á hæðinni eru þrjú herbergi auk þess sem er við anddyri. Eitt þeirra er nýtt sem aðalsvefnherbergi (þar sem eldhús var áður), annað með innbyggðum skápum og það þriðja er lítið herbergi sem nýtist vel sem barnaherbergi eða fataherbergi. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, sturtu og skápainnréttingu.
Bílskúr Bílskúrinn býður upp á ýmsa möguleika. Þar er góð snyrting og gólf flísalagt. Útgegnt baka til á góðan pall. Möguleiki er á auka íbúð í bílskúrnum. Bílastæði framan við bílskúr.
Sameign og staðsetning Geymsla og þvottahús: Í kjallara sameignar er stór sérgeymsla sem tilheyrir hæðinni. Þvottahúsið er sameiginlegt og mjög snyrtilegt, þar sem hver íbúð er með pláss fyrir eigin vélar. Staðsetning: Þetta er afar falleg eign á einum besta stað í hjarta Vesturbæjar, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og fallegar gönguleiðir.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.