Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:
Eitt sumarhús ásamt nokkrum sumarhúsalóðum, eignarlandi, í landi Ormsstaða, Grímsnesi.
Þarna er mjög flott svæði t.d. til beitar fyrir hestamenn að vera með hross samhliða sumarhúsum í kring.
Óskað er eftir tilboði helst í allan pakkann en þó er mögulegt að selja þetta í hlutum, þá hvert fastanúmer fyrir sig, nánari upplýsingar fást hjá fasteignasala, Hrannar 899 0720 eða á hrannar@domusnova.is
Um er að ræða fastanúmerin:
Þverholtsveg 6, stærð 9.660 fm.
Þverholtsveg 8, stærð 10.000 fm.
Þverholtsveg 10, 10.960 fm.
Þverholtsveg 12, stærð 10.050 fm.
Þverholtsveg 16, stærð 50.080 fm.
Samtals er því stærð lands 90.750 fm eða rúmir 9 hektarar.
Einnig stendur á lóð nr. 8, sumarhús byggt 1980, samtals birt stærð 54,8 fm.
Skv. deiliskipulagi svæðis má byggja allt að 100 fm sumarhús á hverri lóð og til viðbótar geymslu, gestahús eða gróðurhús, allt að 15 fm að stærð.
Bent er þó á að þar sem rafmagnslínur þvera landið verður ekki hægt að byggja, þ.e. lóð nr. 10, hluti lóðar nr. 12 og hluti af stóru lóðinni nr. 16.
Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.