Nýtt á skrá! Haustakur 4 í Garðabæ - Glæsileg, vel skipulögð og björt 4ra herb. íbúð með stórum svölum til suðvesturs.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali, kynnir glæsilega og vel skipulagða 4ra herbergja 139,7 fermetra íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við Haustakur 4 í Garðabæ. Um er að ræða frábærlega staðsetta íbúð í Akralandinu í Garðabæ innst í lokuðum botnlanga. Um er að ræða horníbúð sem stendur í miklu næði frá öðrum húsum. Íbúðin er með sérinngangi og stórum svölum til suðvesturs frá stofu. Stórt alrými sem samanstendur af eldhúsi, setustofu og borðstofu. Svefnherbergi eru rúmgóð og þvottaherbergi er innan íbúðar. Stór geymsla er staðsett á jarðhæð hússins.
Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, stórt alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu, baðherbergi og þvottaherbergi inn af íbúð. Stórar skjólgóðar svalir til suðvesturs.
Húsið er byggt árið 2007, álklætt og viðhaldslítið, með fallega frágenginni lóð. Hellulögð stétt og bílastæði fyrir framan hús.
Um er að ræða afar fallega eign á eftirsóttum stað í Garðabæ þar sem stutt er í leikskóla (Akrar), grunnskóla (Hofstaðaskóla), verslun og aðra þjónustu (m.a. matvöruverslun og bakarí). Staðsetning er afar barnvæn þar sem leikvellir eru í næsta nágrenni ásamt fótbolta- og körfuboltavelli. Íbúðin er líklega ein af betur staðsettum íbúðum í hverfinu, innst í lokuðum botnlanga þar sem nokkuð langt er til annarra húsa. Gatan skiptist í fjölbýlishús og einbýlishús.
Lýsing eignar:
Forstofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og skápum.
Gangur/hol: Með harðparketi á gólfi.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, gólfhita og góðri innréttingu með tenglum fyrir þvottavél og þurrkara. Skápar og útloftun.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi. Stofa er rúmgóð og rúmar mjög vel setustofu og borðstofu.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi og stórri eyju. AEG stál bakaraofn, keramik helluborð, stál háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Pláss fyrir tvöfaldan kæliskáp, flísar á milli skápa og lýsing undir efri skápum. Gott borðpláss er við eldhúseyju.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Eru stórar og skjólgóðar og snúa til suðvesturs. Viðarfjalir á svalagólfi. Svalir snúa að fallegu grænu svæði sem er staðsett í miðju hverfisins.
Hjónaherbergi: Er rúmgott og með harðparketi á gólfi. Góðir skápar eru í herbergi og gluggi til vesturs og norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi/veggjum og gólfhita. Sturta og baðkar með sturtutækjum. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. Málað gólf og hjólasnagar. Vaskur og heitt/kalt vatn.
Sér geymsla: Er staðsett í sameign á jarðhæð og er 16,7 fermetrar að stærð. Málað gólf og opnanlegur gluggi.
Húsið að utan: Lítur vel út og virðist vera í góðu ásigkomulagi.
Lóðin: Er frágengin, vel hirt. Tyrfðar flatir, hellulagðar stéttar og malbikuð sameiginleg bílastæði.
Um er að ræða frábæra eign í þessu vinsæla hverfi í Akralandi. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar: Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali og lögfræðingur / heimir@fastlind.is / 849-0672