ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Heiðarholt 30, íbúð merkt 02-01, fastanúmer 208-8842 , birt stærð 78.0 fm ásamt 5.0 fm geymslu í sameign, heildar stærð 83fm. Mjög falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja enda íbúð á 2.hæð með gluggum á þrjá vegu.Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Nánari lýsing:Forstofa með með parketi á gólfi og svörtum fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi og stílhreinni svartri innréttingu með helluborði, ofni og háf. Þar er innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum og góðum fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, svartri innréttingu, handklæðaofn, upphengdu salerni og baðkari með sturtu.
Geymsla i sameign með máluðu gólfi og ekki skráð í birtri stærð eignar.
Þvottaaðstaða er sameiginleg og er á hverri hæð, málað gólf. Sameign er mjög snyrtileg. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla, málað gólf.
Húsið var múrað og málað
2025.Árið
2022 var íbúðin tekin í gegn. Þá var skipt um öll gólfefni, innréttingar, eldhústæki, blöndunartæki í eldhúsi og baði. Neysluvatns lagnir hafa verið endurnýjaðar sem og rafmagn og rafmagnstafla. Ofnar voru ýmist spraulakkaðir eða endurnýjaðir. Innréttingar eru sérsmíðaðar í eldhús og bað, auk skápa í herbergi og andd
Skipt um glugga á baði og í eldhúsi
2021.Járn á þaki endurnýjað
2020Svalahurð endurnýjuð
Stigagangur nýlega tekinn í gegn.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.