4ja herbergja endaíbúð á efstu hæð í Grafarvogi. Stutt í alla helstu þjónustu eins og skóla, sundlaug og íþróttasvæði Fjölnis.
- 95,6m² skv. HMS á 3. og efstu hæð í Foldahverfi
- Mikið endurnýjuð íbúð með 3 svefnherbergjum
- Rúmgóðar svalir og sólskáliNánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Orri Hilmarsson astmf. S: í 615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:Gengið er inn í forstofu. Frá forstofu er gengið inn á gang með eldhúsi á móti forstofu, baðherbergi og tveimur svefnherbergjum til hægri. Gengið er inn í stofu, úr stofu er sólskáli og svalir, gengið er inn í þriðja svefnherbergi úr stofu.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa, parket er á gólfi og gluggar sem hleypa birtu inn í rýmið. Gengið er inn í sólskála úr stofu og úr stofu er útgengt á svalir.
Eldhús: Eldhús með korki á gólfi, helluborði, bakaraofni og pláss fyrir ísskáp.
Svefnherbergi I: Gengið er úr stofu inn í rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II og III: Svefnherbergi með parketi á gólfi og gluggum sem hleypa birtu inn.
Baðherbergi: Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtubaði, klósetti og plássi fyrir þurrkara og þvottavél.
Svalir: Svalir með fallegu útsýni.
Sér geymsla í sameign
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
Íbúðin er endaíbúð á efstu hæð með gluggum á þremur hliðum og sólskála sem hleypir birtu inn.
Stutt í alla helstu þjónustu eins og skóla, sundlaug og íþróttasvæði Fjölnis.
Íbúðin er 95,6m² skv. HMS.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.