Fasteignaleitin
Skráð 18. nóv. 2026

Skyggnisbraut 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
81.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
898.890 kr./m2
Brunabótamat
59.720.000 kr.
Byggt 2022
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25163971
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir fasteignir og Davíð Matthíasson lgf  | david@aldirfasteignir.is kynna:
Glæsileg og björt 81,1 fm þriggja herbergja útsýnisíbúð á þriðju hæð við Skyggnisbraut 1 í Úlfarsárdal.
Eignin er einstaklega vel skipulögð og nýtur mikillar birtu, fallegs útsýnis yfir Reykjavík og til Esjunnar. Íbúðin er í snyrtilegu fjölbýlishúsi með lyftu, byggingar ár 2022, og býður upp á nútímaleg þægindi og góða aðstöðu.


Stofan er björt og rúmgóð með útgengi á vestursvalir þar sem hægt er að njóta sólar og útsýnis yfir Reykjavík og Esjuna. Eldhúsið er fallega innréttað. Staðsetningin er afar góð fyrir þá sem kunna að meta nálægð við náttúruna og útivist. Stutt er í fallegar gönguleiðir og fjölbreytta útivistarmöguleika, þar sem náttúran er nánast við þröskuldinn. Eigninni fylgir sérgeymsla í kjallara, 5,7 fm að stærð, auk sérmerkts bílastæðis í bílakjallara með tengipunkti fyrir rafbílahleðslu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og flísar að hluta til á veggjum. Stílhrein sturta, upphengt salerni, snyrtileg innrétting með handlaug og spegli, handklæðaofn og sérinnrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa: Björt og rúmgóð með góðum gluggum til vesturs og norðvesturs. Útgengi er úr stofu út á vestursvalir þar sem hægt er að njóta sólar og fallegs útsýnis.
Eldhús: Falleg og stílhrein eldhúsinnrétting í ljósum lit með dökkri borðplötu og dökkum efri skápum. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur, helluborð, háfur og ofn í vinnuhæð.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. Hjónaherbergið er rúmgott með stórum fataskáp og glugga til norðvesturs. Barnaherbergið er með fataskáp og glugga til vesturs.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 5,7 fm að stærð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er einnig í húsinu.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í bílakjallara. Þar er tengipunktur fyrir rafbílahleðslu og auðvelt að bæta við hleðslustöð.
Frágangur: Parket er á gólfum íbúðarinnar en flísar á votrýmum.
Um húsið: Skyggnisbraut 1 er fimm hæða fjölbýlishús með lyftu og bílakjallara, byggt árið 2022.

Nærumhverfi og staðsetning:
Úlfarsárdalur er fjölskylduvænt og vaxandi hverfi þar sem áhersla er lögð á gott nærumhverfi, útivist og lífsgæði. Í hverfinu er Dalskóli, samrekinn leik- og grunnskóli, sem býður upp á þægilega aðstöðu fyrir fjölskyldur með börn. Þá er stutt í nýlega og glæsilega Dalslaug sem býður upp á góða aðstöðu til sundiðkunar og afþreyingar fyrir alla fjölskylduna.
Náttúran er sömuleiðis skammt undan og fjölmargar fallegar göngu- og útivistarleiðir eru í næsta nágrenni. Þar má njóta útiveru allt árið um kring og tengjast náttúrunni í fallegu umhverfi. Úlfarsárdalur er því góður kostur fyrir þá sem vilja sameina þægindi borgarlífsins og nálægð við náttúruna.

Nánari upplýsingar og bókun skoðunartíma
Davíð Matthíasson, löggiltur fasteignasali
Aldir fasteignir ehf.
Sími: 898 1713
Netfang: david@aldirfasteignir.is

 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosarimi 13
Skoða eignina Mosarimi 13
Mosarimi 13
112 Reykjavík
81,9 m2
Fjölbýlishús
312
812 þ.kr./m2
66.500.000 kr.
Skoða eignina Úlfarsbraut 102
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Úlfarsbraut 102
Úlfarsbraut 102
113 Reykjavík
115,9 m2
Fjölbýlishús
413
776 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (102)
Hleðslustöð
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
109_LivingRoom.jpg
Skoða eignina Laugaborg (102)
Laugaborg (102)
105 Reykjavík
80,9 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
80.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 213
Hleðslustöð
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
Laugaborg 213.jpg
Skoða eignina Laugaborg 213
Laugaborg 213
105 Reykjavík
103,8 m2
Fjölbýlishús
312
1011 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin