Fasteignaleitin
Opið hús:14. júlí kl 16:15-16:45
Skráð 9. júlí 2026

Huldugil 58

RaðhúsNorðurland/Akureyri-603
92.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.900.000 kr.
Fermetraverð
854.821 kr./m2
Fasteignamat
68.450.000 kr.
Brunabótamat
59.500.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2217792
Landnúmer
148396
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Kasa fasteignir 461-2010.

Huldugil 58. Fallegt, mikið uppgert 92,3 fm 3 herbergja raðhús með um 15 fm gestahúsi, geymsluskúr, sólpalli og heitum potti á mjög vinsælum stað í Giljahverfi.

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi og tvö svefnherbergi.


Forstofa: Er með flísum á gólfi og hvítum fataskáp.
Þvottahús: Er með hvítri innréttingu með miklu skápaplássi og plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur er til hliðar við þvottavélar. Opnanlegur gluggi er á þvottahúsinu. Áður var geymsla inn af þvottahúsi en búið er að sameina rýmin í eitt rúmgott rými.
Eldhús: Var gert upp fyrir nokkrum árum, þar er hvít U-laga innrétting með ágætu skúffu og skápaplássi. Pláss er fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Bakaraofn er í vinnuhæð. Helluborð og háfur.
Stofa: Er í opnu rými með eldhúsi sem er nokkuð rúmgott og nýtist sem sjónvarpsstofa og borðstofa. Parket er á gólfum. Gengið er út á sólpall úr stofu.
Baðherbergi: Er nýlega uppgert, þar eru flísar á gólfum og háglans vatnsheldum veggjaplötum á veggjum. Hvít innrétting með viðar borðplötu með vaski. Vegghengt svart salerni, innangeng sturta með dökku sturtugleri, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Eru tvö innan eignar, bæði með parketi á gólfum. Hjónaherbergið er með litlu fataherbergi inn af sem áður var geymsla. Minna herbergið er með fataskáp.
Sólpallur: Er rúmgóður, með svörtum skjólveggjum og ljósu gólfi. Á pallinum er hitaveitu heitur pottur, geymsluskúr og gestahús.
Gestahús: Um 15 fm hús er á lóðinni, húsið er einangrað með bárujárnsþaki. Rafmagn er í húsinu, parket á gólfi og tveir opnanlegir gluggar. Húsið var keypt tilbúið og hýft inn á lóðina. Húsið er ekki skráð í birta fermetra eignar.

- Búið er að endurnýja alla glugga og útidyrahurð.
- Innihurðar eru nýlegar.
- Búið að gera upp baðherbergi og eldhús.
- Frábær staðsetning í Giljahverfi.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/08/201421.100.000 kr.24.900.000 kr.92.3 m2269.772 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 103
Bílastæði
Jöfursbás 3B íb 103
112 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
976 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 307 Hlutd.lán
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 307 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
808 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Beykiskógar 19 íbúð 303
Beykiskógar 19 íbúð 303
300 Akranes
77.6 m2
Fjölbýlishús
312
830 þ.kr./m2
64.400.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 79
Skoða eignina Kristnibraut 79
Kristnibraut 79
113 Reykjavík
108.1 m2
Fjölbýlishús
312
739 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin