Fasteignaleitin
Skráð 11. apríl 2024

Hraunbraut 6

RaðhúsSuðurland/Selfoss-805
100.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
647.705 kr./m2
Fasteignamat
4.410.000 kr.
Mynd af Embla Torfadóttir
Embla Torfadóttir
Tengiliður seljanda
Fasteignanúmer
F2524695
Húsgerð
Raðhús
Númer íbúðar
6
Svalir
nei

90% fjármögnun! Nýtt og glæsilegt 100fm 4ra herbergja endaraðhús að Borg, Grímsnesi. Fjölskylduvænt hverfi með laust leikskólapláss.

Hraunbraut 6A: Nýtt glæsilegt endaraðhús að Hraunbraut 6, Borg í Grímsnesi, í raðhúsalengju með 5  íbúðum. Laust til afhendingar strax. Íbúðin er fullbúin að innan sem utan, en lóð er grófjöfnuð. Stærð íbúðar er um 100 fm. Innfeldur ísskápur og uppþvottavél í eldhúsi.  

 

90% fjármögnun í boði:  viðbótarlán frá IMIROX til lögaðila - greiðsludreifing ti einstaklinga . Frekari upplýsingar um lánamöguleika IMIROX á www.imirox.is
 
Íbúðin er 4ra herbergja og skiptist upp í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, og opið rými með eldhúsi og stofu. Innfeld lýsing. Útgengt í suðurgarð um svalahurð í stofu. 

Vönduð eldhúsinnrétting og skápar frá HTH. Parket á gólfum, og flísar á baðherbergi. 

Baðherbergið er flísalagt með vönduðum Porcelanosa flísum, upphengdu salerni, og innsteypt þröskuldarlaus sturta með öryggisgleri. Blöndunartæki af vandaðri gerð.      

Gólfhiti er í öllum rýmum, með hitastýringu fyrir sérhvert svæði. Vélrænt útsog er í rakarýmum og eldhúsi. 

Klæðning hússins er viðhaldslétt lituð bárujárnsklæðning.

Lóðin skilast grófjöfnuð. 2 bílastæði framan við hús. Leiðslur til að tengja heitan pott verða til staðar, sem og fyrir garðkrana.  

Beint fyrir framan raðhúsið er glænýr leikvöllur.  Rólegt og fjölskylduvænt umhverfi.   

 
Borg í Grímsnesi er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Í göngufæri er a finna sundlaug, leikskóla, grunnskóla, og þjónustu við eldri borgara. Ný verslun, bensínstöð og hleðslustöð fyrir rafbíla, líkamsræktarsalur og fleiri mannvirki eru ýmist í byggingu eða í undirbúningi. Enginn biðlisti er í leikskólann og grunnskólann, og mötuneyti sveitafélagsins sér ungviðinu fyrir hollum íslenskum þjóðarréttum. Sveitafélagið hefur ítrekað verið valið besta sveitafélag landsins í þjónustukönnunum. Svæðið er paradís fyrir útivistarfólk. Miklir atvinnumöguleikar á svæðinu. 

Selfoss er í 15mín akstursfjarlægð, og Reykjavík í c.a. 45mín akstursfjarlægð. 

Frekari upplýsingar um svæðið og sveitafélagið má finna hér: https://www.gogg.is/ 

 

Fjármögnun: IMIROX lán til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is

 

Frekari upplýsingar um þessa fasteign veitir IMIROX í síma 777-2500 eða í tölvupósti info@imirox.com. 

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 309 Hlutd.lán
Hringhamar 35, íb. 309 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
98 m2
Fjölbýlishús
312
765 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Keldugata 4
Bílskúr
Opið hús:29. mars kl 13:00-15:00
Skoða eignina Keldugata 4
Keldugata 4
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús
635
842 þ.kr./m2
189.000.000 kr.
Skoða eignina Keldugata 6
Bílskúr
Opið hús:29. mars kl 13:00-15:00
Skoða eignina Keldugata 6
Keldugata 6
210 Garðabær
225.3 m2
Raðhús
724
817 þ.kr./m2
184.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin