Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - Kynnir til sölu - Urðarvegur 47 Ísafirði - Mjög stórt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum auk bíllskúrs - Frábært útsýni yfir fjörðinn - Stærð eignar býður upp á að hægt sé að hafa séríbúðir á hvorri hæð, einnig er mögulegt að útbúa stúdíóíbúð undir bílskúr.
Á efri hæð er forstofa, geymsla, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa og þrjú herbergi. Á neðri hæð er sér útgangur og forstofa, stór geymsla með þvottaaðstöðu og kyndiklefa, stórt glugggalaust herbergi, setustofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Bílskúr er skráður 28,2 m² og geymsla undir bílskúr 24,8 m². Eigninni hefur verið vel viðhaldið í gegnum tíðina.
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Komið inn í flísalagða forstofu með ágætum fataskáp. Hol/gangur með harðparketi á gólfi.
Eldhús með ágætri innréttingu, helluborð, ofn og örbylgjuofn, nýleg uppþvottavél fylgir, lítið fast eldhúsborð, flísar á gólfi, hiti í gólfi.
Mjög rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi, útgengt út á stórar svalir, gott útsýni yfir bæinn. Útgengt út á verönd að sunnanverðu og stigi niður í garð.
Vaskahús með skápum og vaski, sérútgangur þar, mögulegt að setja upp sem þvottahús.
Baðherbergi með ágætri innréttingu, baðkar, flísar á gólfi og hiti í gólfi.
Þrjú svefnherbergi á hæðinni, svefnherbergi með harðparketi.
Annað herbergi, nýtt sem fataherbergi í dag, skápar og hillur, harðparket á gólfi.
Þriðja herbergið er hjónahebergi með harðparketi á gólfi, sérútgangur út á verönd sunnan megin, stór fataskápur.
Parketlagður tigi á milli hæða.
Neðri hæð:
Gangur með harðparketi á gólfi. Stór geymsla með hillum, þvottaaðstaða og afstúkaður kyndiklefi.
Stórt gluggalaust herbergi með korkflísum á gólfi.
Setustofa með harðparketi á gólfi.
Forstofa á neðri hæð með flísum á gólfi, sérútgangur út í garð.
Tvö ágæt svefnherbergi með harðparketi á gólfum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefi, upphengt salerni og hiti í gólfi.
Bílskúr:
Geymsla undir bílskúr með sérinngangi, skráð stærð 24,8 m², steypt málað gólf, möguleiki á að útbúa stúdíóíbúð þar eins og hefur verið gert í sambærilegum eignum í götunni.
Bílskúr er skráður 28,2 m², bílskúrshurð með rafmagnsopnun frá Héðni frá 2023. Steypt málað gólf, niðurfall, vaskur og vinnuborð. Steypt bílastæði fyrir framan bílskúr.
Afgirtur garður fyrir framan hús. Stór garður fyrir neðan hús.
Framkvæmdasaga seljenda: Ný bílskúrshurð frá Héðni sett upp 2023. Ný uppþvottavél 2024 fylgir með, vifta einnig 2024, tengd beint út úr húsi.
Málað innanhúss 2024.Borið á allar útidyr 2025. Fataherbergi innréttað 2024. Frágangur á hellum á sólpalli sumarið 2025.
Eldhús og baðherbergi endurnýjuð af fyrri eiganda, þakjárn einnig endurnýjað af fyrri eiganda.